Valsblaðið - 01.05.2014, Page 69

Valsblaðið - 01.05.2014, Page 69
Valsblaðið 2014 69 Starfið er margt Veistu hvernig leikjaálagið er hjá þessum strákum yfir keppnis- tímabilið? Ég þekki það ekki vel en mér skildist að þeir spiluðu vikulega. Það var einn úr hópnum með mér sem var að fá tækifæri með aðalliðinu og hann virðist því vera næstur inn, 17 ára. Það virðist því vera að það séu alveg jafn mikil tækifæri til að komast upp ef menn hafa hæfileika í handbolta á annað borð. Skynjarðu einhverja svipaða hluti hjá Füchse og við þekkjum hér heima eins og t.d. mikið brottfall á þessum aldri eða að ungir strákar hrökklist í önnur lið þar sem þeir telji að þeir muni aldrei ná inn í aðalliðið? Nei. Füchse er þannig að það kemst ekki hver sem er inn í liðið. Þetta er lítill hóp- ur. Strákarnir eru bara 14 og er í raun úr- valshópur. Menn gera sér fulla grein fyrir því að með því að æfa með þeim bestu þá bætirðu þig og þarna eru allir með það á hreinu að þeir séu vel settir. Þess vegna myndi enginn í þessum hópi segja að hann kæmist ekki á æfingu vegna þess að hann væri að fara í leikhús. Það myndi enginn koma sér í slíka stöðu. mitt um þetta leyti þá skrifuðu þeir Dag- ur undir samning um að taka við þýska landsliðinu. Þess vegna fengum við nýj- an þjálfara sem er ætlað að taka við af Bob með liðið. Hvernig gekk að skilja og gera sig skiljanlegan? Talarðu þýsku? Ég skildi grunninn. Ég er byrjaður í þýsku í MH og það hjálpaði þó ekki væri nema til að skilja tölur, tímasetningar og einföldustu fyrirmæli. En fyrirfram voru æfingarnar skýrðar út fyrir okkur á ensku. Hvað fannst þér um áherslurnar á æfingum? Var verið að leggja áherslu á tækni, styrk, kerfi eða eitthvað sem þér fannst frábrugðið því sem þú þekkir hér heima? Nei. Flest er þetta kunnuglegt. Bæði boltaæfingarnar og styrkurinn. En það voru þá kannski helst útihlaupin. Það var mjög oft farið í góð útihlaup. T.d. byrjað að hlaupa 4 km, síðan tekin smá pása og aftur hlaupnir 4 km á meiri hraða. Þeir fara vikulega í útihlaup. Hér hjá okkur er yfirleitt ekki farið að hlaupa nema við komumst hvorki í sal né þrek. Hvernig var þýski hópurinn saman- settur? Voru þetta allt strákar frá Berlín? Langflestir voru frá Berlín en sennilega voru fjórir strákar utan Berlínar. Einn var frá Írak en síðan einn frá Nürnberg og tveir þýskir strákar til viðbótar en þeim hafði verið boðið að æfa með akademí- unni þar sem þeir þóttu mikil efni. Hvað með hversdagsleg atriði eins og mataræði? Var það framandi eða gamalkunnur heimilismatur á borðum? Það var stundum furðulegt. T.d. var einu sinni í hádeginu ekki boðið upp á neitt annað en hrærð egg með hrísgrjónum eftir að maður hafði verið á erfiðri morg- unæfingu. En þýsku strákunum fannst þetta jafnfurðulegt og mér. Ég lét mig hafa það og borðaði, en ekki kannski af bestu lyst. Hvernig fannst þér líkamlegt ástand á þýsku strákunum í samanburði við hér heima? Voru þetta meira og minna tveggja metra og 100 kílóa kraftakarlar eða strákar í svipuðu standi og hér heima? Þeir voru jafn fjölbreytilegir og hér hjá okkur. Hornamennirnir úti voru t.d. bæði 160 og 180 sm strákar. En það virðist nokkuð snemma búið að setja menn í fasta stöðu. Menn með góðan stökkkraft eru í skyttum og sterkir strákar sem geta haldið blokk eru settir á línuna án tillits til þess hvort þeir séu endilega stórir. Það virðist byrja mjög snemma að sérhæfa menn í ákveðnum stöðum. Þér hefur ekki liðið eins og þú værir væskillinn á svæðinu sem ættir ekkert erindi í hina strákana? Nei, alls ekki. Það voru strákar þarna sem voru alls ekki í góðu standi og áttu í miklum erfiðleikum í lyftingunum. En það voru líka strákar sem voru í firna- góðu standi. Bæði með gott hlaupaþol og styrk sem þeir sýndu í lyftingum. En þessir sem virtust ekki í góðu líkamlegu standi voru engu að síður góðir í hand- bolta. Var alltaf sami þjálfarinn með ykkur eða voru alltaf nýir þjálfarar með sér- stök verkefni? Dagur Sigurðsson var með eina æfingu með okkur en svo var Bob Hanning að þjálfa okkur. En Bob þessi á Füchse. Hann var með okkur fyrstu þrjá dagana. En hann er að hætta með liðið því ein- Ýmir Örn Gíslason fékk tækifæri til að æfa hjá Füsche Berlín og fannst það mjög lærdómsríkt. Ljósm. Guðni Olgeirsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.