Valsblaðið - 01.05.2014, Síða 86
86 Valsblaðið 2014
Starfið er margt
7–11 ára stelpur MB
Fyrir áramót var Hafdís yfir flokknum og
var rosa stuð hjá stelpunum. Eftir áramót
tóku Sóllilja og Guðbjörg við flokknum
og stelpurnar eru mjög efnilegar í körfu-
bolta, duglegar og skemmtilegar. Mjög
miklar framfarir hafa verið hjá stelpun-
um næstum því frá hverri æfingu. Þær
eru áhugasamar og duglegar í að reyna
að verða betri. Stelpurnar fóru á nokkur
mót yfir veturinn og stóðu þær sig með
glæsilegri prýði á hverju einasta móti.
Þetta eru upprísandi stjörnur fyrir körfu-
boltann í Val. Eldri stelpurnar fóru á
fleiri mót og einkenndist tímabilið af
gleði og hamingju.
Leikmaður flokksins: Elísabet Thelma
Róbertsdóttir
Mestu framfarir: Marta María Sæberg
Áhugi og ástundun: Telma Jeanne
Bonthoneau
MB 11 strákar
Í vetur voru að æfa 12–16 strákar í
flokknum fjórum sinnum í viku, undir
stjórn Ágúst S. Björgvinssonr sem var
þjálfari í flokknum, Edwin og Svali voru
til aðstoðar. Strákarnir voru duglegir að
æfa og tóku allir miklum framförum, nóg
var að gera farið á mörg æfingamót, spil-
aðir æfingaleikir og tekið þátt í Íslands-
móti. Liðið hóf keppni í C-riðli sem var
leikinn í Stykkishólmi, strákarnir stóðu
sig mjög vel og sigruðu alla fjóra leiki
mótsins mjög örugglega. Önnur umferð
var því í B-riðli sem var á Flúðum,
drengirnir spiluðu mjög vel og sigruðu
aftur alla leiki og voru þá komnir upp í
A-riðil sem var leikinn í Reykjavík hjá
KR þar stóðu strákarnir sig alveg frábær-
lega og sigruðu þrjá af fjórum leikjum.
Úrslita mótið var svo haldið í Keflavík
þar sem strákarnir spiluðu mjög vel og
unnu fyrstu þrjá leikina sína í jöfnum
leikjum. Fjórði leikurinn var gegn Kefla-
vík sem voru ósigraðir á tímabilinu og
á nokkur mót í vetur og gekk vel. Meðal
móta sem farið var á má nefna Póstmót
Breiðbliks og Nettómótið í Reykja-
nesbæ. Endaði veturinn svo á flottu vor-
moti Vals þar sem strákarnir sýndu að
þeim hefur farið mikið fram í vetur. Það
sem einkennir hópinn er að þeir eru líf-
legir og mjög kröftugir. Þjálfari: Þor-
grímur Guðni Björnsson.
9–10 ára strákar MB
Strákarnir eru búnir að standa sig með
prýði innan vallar sem utan. Þeir eru
búnir að fara á fjölmörg mót og standa
sig glæsilega. Strákarnir fóru á Nettó-
mótið sem var haldið í Reykjanesbæ og
þar var svaka stuð hjá strákunum. Miklar
framfarir urðu hjá einstaklingunum í lið-
inu og sérstaklega urðu framfarir í sam-
vinnu og spila saman hjá strákunum á
tímabilinu. Strákarnir eru búnir að sýna
það og sanna að þeir eru og geta orðið
mjög duglegir og eiga algjörlega fram-
tíðina fyrir sér í körfubolta.
Uppskeruhátíð körfunnar
Byrjendaflokkur karla og kvenna
Þetta er fyrsti veturinn sem byrjenda-
flokkur er í körfubolta hjá Val með 4 ára
gömlum börnum. Veturinn byrjaði rólega
og voru 1–2 á æfingum en þegar leið á
hann var farið að fjölga mikið og á tíma-
bili mættu 8–10 börn á æfingar. Á þess-
um árum er mikill munur á hverjum aldri
en gaman var að sjá að þessi ungu gáfu
þeim eldri ekkert eftir. Miklar framfarir
urðu í vetur hjá öllum og var svo tekið
þátt í fyrsta mótinu í mai. Þetta var frá-
bært mót og stóðu börnin sig eins og
hetjur. Allir voru glaðir og sælir eftir
mótið og má segja að þetta hafi verið
góð leið til að enda frábæran vetur. Þjálf-
ari: Kristjana B. Magnúsdóttir.
7–8 MB strákar
Strákarnir eru fæddir árin 2005–2006 og
hafa nokkrir liprir strákar úr 2007 ár-
gagnum spriklað með þeim á æfingum
og mótum og er það vel. Strákarnir fóru
7. flokkur karla, Reykjavíkur
meistarar A liða 2014.