Gerðir kirkjuþings - 1995, Síða 151
1995
26. KLRKJUÞING
3. mál
hefur ákvörðunar/ald um einstök mál, nema þau heyri undir önnur stjómvöld
þjóðkirkjunnar samkvæmt lögum þessum.
Um kirkjuaga og lausn ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi
Úrskurðarnefnd
11. gr.
Biskup íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar og beitir sér
fyrir lausn ágreiningsefiia, sem rísa kunna á kirkjulegum vettvangi. Vegna agabrota getur
hann gripið til þeirra úrræða, sem lög og kirkjuhefð leyfa.
Ágreiningsaðilar geta farið þess á leit við biskup Islands, að mál fari fyrir
sérstaka nefnd, úrskurðamefnd, og ákvarðar hann þá, hvort orðið verði við þeirri
málaieitan. Kirkjuþing setur nánari starfsreglur um úrskurðamefnd, sbr. 63. grein.
Áfrýjunamefnd
12. gr.
Niðurstöðu úrskurðamefiidar, sbr. 11. gr., má skjóta til áffýjunamefndar, sem
dóms- og kirkjumálaráðherra skipar til ijögurra ára í senn. Hafa málsaðilar og biskup
Islands heimild til áfiýjunar. Árýjunarfrestur er þijár vikur.
Afrýjunamefiid er skipuð þrem löglærðum mönnum, sem fullnægi almennum
skilyrðum til þess að vera skipaðir hæstaréttardómarar, og sé einn þeirra formaður. Skulu
þeir allir skipaðir samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar. Varamenn skulu skipaðir með sama
hætti. Við meðferð einstakra mála skal nefndin skipuð tveim sérfróðum mönnum til
viðbótar, sem nefiidin kveður sjálf til starfans.
Urskurðir áfiýjunamefiidar, sem skulu vera rökstuddir og að jafiiaði kveðnir upp
innan sex vikna frá því að mál barst nefiidinni, em endanlegir og bindandi innan valdsviðs
þjóðkirkjunnar.
Varði mál agabrot eða embættisfærslu prests sérstaklega, getur biskup Islands vikið
hlutaðeigandi úr starfi meðan um mál hans er fjallað í úrskurðamefiid og áfiýjunamefiid, og
skal þá annar settur eða ráðinn til að gegna prestsstarfinu á meðan.
Kirkjuþing setur nánari ákvæði um málsmeðferð fyrir úrskurðamefnd og
áfiýjunamefiid í starfsreglur skv. 63. gr. laga þessara.
Nú er biskup íslands vanhæfur til ákvarðanatöku skv. 11. og 12. gr. laga þessara,
sbr. ákvæði n. kafla stjómsýslulaga nr. 37/1993, og kemur þá sá vígslubiskup, sem eldri er
að biskupsvígslu, í hans stað.
Um hæfi nefiidarmanna í úrskurðamefiid og áfiýjunamefhd til meðferðar einstakra
mála gilda ákvæði n. kafla stjómsýslulaga nr. 37/1993 svo og almenn ákvæði
stjómsýslulaga um málsmeðferð að því marki sem starfsreglur, er settar verða skv. 63. gr.
þessara laga, mæla eigi fyrir á annan veg.
146