Gerðir kirkjuþings - 1995, Síða 185
1995
26. KIRKJUÞING
3. mál
Kosið skal í kirkjuráð á fyrsta kirkjuþingi að aflokinni kosningu. Kirkjuráðsmenn sitja
þar til nýtt kirkjuráð hefur verið kjörið.
Kirkjuráð kýs sér varaforseta, en biskupsritari er ritari kirkjuráðs.
c. Starfssvið kirkjuráðs
23. gr.
Kirkjuráð fer með framkvæmd sameiginlegra málefiia þjóðkirkjunnar, þar á meðal
verkefiia, sem lög og stjómvaldsreglur ætla því, og erinda, sem vísað er til þess m.a. af hálfu
kirkjuþings, prestastefiiu, leikmannastefnu, Alþingis og kirkjumálaráðherra.
Akvörðunum kirkjulegra stjómvalda, sem heyra undir lögsögu kirkjuráðs, má skjóta
til kirkjuráðs til endanlegrar úrlausnar. Undanskildar em ákvarðanir biskups skv. 11. og 12.
gr. svo og um kenningu kirkjunnar, sbr. 10., 17., 18. og 25. gr. laga þessara. Varði
málsskot ákvörðun biskups íslands, er hann heíiir áður tekið, víkur hann sæti í kirkjuráði
meðan það mál er til meðferðar þar.
Akvörðunum kirkjuráðs á framkvæmdasviði kirkjulegrar stjómsýslu verður eigi
áfrýjað til kirkjuþings en íjalla má um málefrdð á kirkjuþingi að frumkvæði einstakra
kirkjuþingsmanna.
Um málsmeðferð í kirkjuráði, svo og meðal annarra kirkjulegra sljómvalda, skal
fylgt ákvæðum stjómsýslulaga nr. 37/1993 eftir því sem við getur átt, leiði annað eigi af
ákvæðum laga eða starfsreglna, sem kirkjuþing setur skv. 62. gr. laga þessara. Hið sama á
almennt við um sérstakt hæfi kirkjulegra stjómvalda til meðferðar einstakra mála.
24. gr.
Kirkjuráð undirbýr fundi kirkjuþings og fylgir eftir samþykktum þess.
Kirkjuráð undirbýr af hálfú þjóðkirkjunnar tillögur til fjárveitinga til hennar á
fjárlögum.
Kirkjuráð hefúr á hendi yfirumsjá kristnisjóðs, sbr. 23. gr. laga nr. 35/1970,
jöfiiunarsjóðs, sbr. II. kap. laga nr. 91/1987, kirkjumálasjóðs, sbr. lög nr. 138/1993,
prestssetrasjóðs, sbr. 2. - 3. gr. laga nr. 137/1993. Kirkjuráði er heimilt að kjósa stjórnir
þessara sjóða.
Kirkjuráð hefúr yfimmsjón með ráðstöfún fjár, sem veitt er af opinberri hálfii til
kirkjulegrar starfsemi.
Kirkjuráð hefúr forræði og forsjá um Skálholtsstað, svo sem greinir í lögum nr.
32/1963, og hefúr þau afskipti af málefnum Skálholtsskóla, er greinir í lögum nr. 22/1993.
6. Prestastefna
25. gr.
Biskup Islands boðar til almennrar prestastefiiu (synodus generalis) og er forseti
hennar.
A prestastefiiu eiga setu og atkvæðisrétt vígslubiskupar og allir starfandi
þjóðkirkjuprestar, svo og fastir kennarar guðfræðideildar Háskóla íslands með
guðfræðimenntun og guðfræðingar, sem gegna föstum störfúm á vegum þjóðkirkjunnar.
Aðrir prestar og guðfræðingar eiga rétt til fúndarsetu með málfrelsi og tillögurétti enda séu
þeir rnnan safiiaða, er starfa á játningargrundvelli evangelísk-lútherskrar kirkju.
180