Gerðir kirkjuþings - 1995, Page 265
1995
26. KIRKJUÞING
13, mál
PORVOO
Flutt af kirkjuráði
Frsm. dr. Einar Sigurbjömsson
V
f ÁTT AÐ NÁNARI EININGU
A. Sameiginleg yfirlýsing
58. Við mælum með að kirkjur okkar sameinist um eftirfarandi yfirlýsingu:
PORVOO -YFIRLÝSINGIN
Á gmnni sameiginlegs skilnings á eðli og tilgangi kirkjunnar, samkomulags um
trúargrundvöll og um biskupsembættið í þjónustu hins postullega arfs kirkjunnat,
gemm við eftirtaldar kirkjur með okkur samkomulag:
Danska þjóðkirkjan, Enska kirkjan, Evangelísk-lúterska kirkjan í Eistlandi, Evangelísk-
lúterska kirkjan í Finnlandi, íslenska þjóðkirkjan, írska kirkjan, Evangelísk-lúterska
kirkjan í Lettlandi, Evangelísk-lúterska kirkjan í Litháen, ,Norska kirkjan, Skoska
biskupakirkjan, Sænska kirkjan, Kirkjan í Wales.
Samkomulag okkar og stefna er sem hér segir:
a. i) Við lýsum þvi yfir að sérhver áðumefndra kirkna heyrir til hinni einu,
heilögu, almennu og postullegu kirkju Jesú Krists og á að sönnu þátt í hlutverki alls
lýðs Guðs.
ii) Við lýsum yfir að í sérhverri þessara kirkna er Orð Guðs sannarlega
boðað, og sakramentum skímar og kvöldmáltíðar rétt úthlutað.
iii) Við lýsum yfir að allar kirkjumar játa sameiginlega hina postullegu trú.
iv) Við lýsum yfir að vígð þjónusta sérhverrar þessara kirkna er gefin af
Guði sem farvegur náðar hans. í þeirri þjónustu felst ekki eingöngu innri köllun Heilags
anda, heldur einnig boð Krists til starfa í gegnum líkama hans, kirkjuna.
260