Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 67
Starfsreglur um sérhæfða þjónustu kirkjunnar við fjölskylduna
14. mál, flutt af kirkjuráði
1. gr. Á vegum þjóðkirkjunnar skal veita ráðgjöf í fjölskyldumálum
(ijölskylduþjónustu) sbr. 3. tl. 4. gr. laga um kirkjumálasjóð nr. 138/1993.
Fjölskylduþjónusta samkvæmt starfsreglum þessum telst til sálgæslu - og
kærleiksþjónustu kirkjunnar.
2. gr. Með ráðgjöf kirkjunnar í fjölskyldumálum skal
a) styðja fjölskyldur sem þess óska, einkum með viðtölum, ráðgjöf og fræðslu á
grundvelli kristinna lífsgilda
b) styðja og efla presta í störfum þeirra við sáttaumleitanir, hjónafræðslu og ráðgjöf
við fjölskyldur á sama hátt og greinir í a lið.
3. gr. Til að sinna verkefnum samkvæmt 1. og 2. gr. skal starfrækja sérstaka stofnun á
vegum þjóðkirkjunnar er nefnist Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, sem heyrir undir
kirkjuráð.
4. gr. Kirkjuráð og stjóm semja við ríki, sveitarfélög eða kirkjulega aðila um
fjárhagslega þátttöku í rekstri stofnunarinnar og stjóm hennar, sbr. 5. gr.
Heimilt er að semja við þá, er greinir í 1. mgr. svo og aðra, um þjónustu er stofnunin
veiti eða þiggi frá þeim gegn endurgjaldi.
5. gr. Með yfirstjóm stofnunarinnar fer þriggja manna stjóm, skipuð af kirkjuráði til
fjögurra ára frá og með 1. júlí, árið eftir kjör til kirkjuráðs. Kirkjuráð skipar þrjá
varamenn frá sama tíma. Kirkjuráð óskar eftir tilnefningum frá Prestafélagi íslands og
sérþjónustuprestum (Samverjanum). Kirkjuráð velur formann og varaformann.
Stjómin ber ábyrgð á að stofnunin sinni skyldum sínum og að stofnunin haldi sig
innan fjárheimilda hverju sinni.
6. gr. Stjómin gerir árlega starfs - og rekstraráætlun og leggur fyrir kirkjuráð til
samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Starfs - og rekstrarár stofnunarinnar er
almanaksárið.
Stjórn og forstöðumaður skulu á hverju reikningsári semja ársreikning. Jafnframt skal
samin skýrsla stjómar fyrir liðið starfsár. Stjóm og forstöðumaður skulu undirrita
ársreikninginn. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir kirkjuráð.
7. gr. Stjóm, í samráði við kirkjuráð, ræður forstöðumann stofnunarinnar og setur
honum erindisbréf. Forstöðumaður annast daglega yfirstjóm stofnunarinnar.
Forstöðumaður ræður annað starfsfólk í samráði við stjóm. Heimilt er að semja við
annan aðila um rekstrarþjónustu við stofnunina svo sem um fjárhald og bókhald,
rekstur húsnæðis, skrifstofu og upplýsingakerfis, annan almennan skrifstofurekstur og
aðra sambærilega þætti.
8. gr. Færa skal til bókar meginatriði þess sem fram fer á fundum stjómar og
ákvarðanir hennar. Fundargerðir skulu sendar kirkjuráði reglulega.
9. gr. Stjómarmenn og starfsfólk stofnunarinnar er bundið þagnarskyldu um það sem
leynt á að fara þ. e. málefni skjólstæðinga, annað sem lýtur að rækslu starfa þeirra og
málefni stofnunarinnar. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
63