Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 12
hafi allir kirkjunnar menn þakkir fyrir frábæran undirbúning og framkomu á hátíðinni
sem og í öðrum athöfnum sem afimælisárinu tengjast.
Það er metnaðarfull dagskrá sem hér liggur fyrir og mörg merkileg mál sem á að ræða en
ég vil sérstaklega leggja áherslu á það að á kirkjuþingi verður nú haldið áffiam umræðum
um skipulagsmál þjóðkirkjunnar og hlýt ég að fagna því. Þjóðkirkjan þarf að aðlaga sig
og fylgja eftir hraðfara breytingum samfélagsins og skipulag hennar má aldrei staðna. Ég
vona að farsælt samkomulag náist um skipulagsmálin og ég tel raunar að það sé ákaflega
mikilvægt fyrir stöðu þjóðkirkjunnar í okkar samfélagi.
Hér á þinginu verður nú lagt ffiam til umijöllunar ffiv. til laga um breytingu á
þjóðkirkjulögum að því er varðar skipun presta. Hér er um breytingu að ræða sem felur
það í sér í fyrsta lagi að sami háttur verði hafður á um skipun og setningu sóknarpresta og
annarra presta, þ.e. að veitingarvaldið verði hjá biskupi íslands. Ekki virðast vera
skynsamleg rök fyrir því að kirkjumálaráðherra setji eða skipi sóknarpresta en biskup
Islands skipi aðra presta. Því er lagt til í ffiv. að biskup skipi alla presta og er það í
samræmi við þá stefhu að auka beri sjálfstæði þjóðkirkjunnar.
I öðru lagi er lagt til að brevta 51. gr. laganna um skipun Þingvallaprests, að afhumin sé
sú sérregla að Þingvallanefhd hafi aðkomu að vali sóknarprests á Þingvöllum. Sú regla á
sér sögulegar skýringar sem ekki eiga lengur við eftir að skilið var á milli þeirra tveggja
starfa sem áður var bundið í lög að Þingvallaprestur skyldi gegna. Eru því engin haldbær
rök fyrir því að veiting prestsembættis á Þingvöllum fari ffiam með öðrum hætti en gildir
almennt. En það skal sérstaklega tekið fram að þessi breyting er ekki í tengslum við þær
umræður sem nú fara ffiam um hvort sóknarprestur skuli sitja á Þingvöllum heldur er hér
einungis verið að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafa á starfi Þingvallaprests.
Fulltrúi ráðneytisins mun kynna ffiv. nánar hér á þinginu og mun að sjálfsögðu leitast við
að svara öllum þeim spumingum sem ffiam kunna að koma, en mér er kunnugt um að
stjóm Prestafélagsins hefur ritað forseta þingsins bréf þar sem athugasemdir eru gerðar
við ffiv. Auðvitað væri æskilegt að samkomulag væri um efhi þessa frv.
En svo að ég haldi áfram að ræða um löggjöf þá vil ég nefna það sem ég reyndar nefndi
einnig á síðasta kirkjuþingi, að í deiglunni er endurskoðun á lögum um kirkjugarða og
fleira sem þeim tengist. Það er aðskilið ffiá því máli er varðar fjárhagsstöðu
kirkjugarðanna sem verið hefur til sérstakrar skoðunar um nokkurt skeið og hefur nú
nýverið borið á góma við gerð þess fjárlagaffiv. sem liggur fyrir Alþingi. I athugasemdum
við fjárlagffiv. er þess reyndar getið að viðræður um málefni kirkjugarðanna verði teknar
upp mílli ráðuneyta fjármála og kirkjumála og em þær viðræður nú að heíjast, en þar
munu fulltrúar stjóma kirkjugarðanna að sjálfsögðu koma að málinu.
Að lokum vil ég nefna að viðræður em í gangi milli fulltrúa ríkis og kirkju um málefni
prestssetra og eru þær viðræður nú í góðum farvegi að mínu mati. Of snemmt er þó að
segja hvenær þær muni leiða til endanlegrar niðurstöðu en vonandi verður það fljótlega.
Góðir kirkjuþingsfulltrúar. Um næstu Jónsmessu mun vera áformað að bæði prestar og
leikmenn komi saman til að ræða ffiamtíðarsýn kirkjunnar, en slíkar umræður munu hafa
10