Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 49
Skýrsla
prestssetrasjóðs
og
tillaga til þingsályktunar um kaup og sölu á prestssetrum
7. og 35. mál, flutt af Bjama Kr. Grímssyni, formanni prestssetrasjóðs.
Stjórn og starfsmenn
Á síðasta kirkjuþingi var kosið í þau sæti í aðal og varastjóm Prestssetrasjóðs sem
voru ekki setin eftir fyrsta starfsár þeirrar stjómar sem kirkjuþing kaus. Fyrir sátu
Bjami Kr. Grímsson formaður og Láms Ægir Guðmundsson ritari og sr. Úlfar
Guðmundsson fyrsti varamaður. í stjómina var kosin Kristrún Heimisdóttir
lögfræðingur og varamenn til viðbótar sr. Úlfari þau sr. Agnes M. Sigurðardóttir og
Bjami Guðráðsson.
Stjómin hefur haldið tólf stjómarfundi frá síðasta kirkjuþingi auk fjölda vinnufunda
einstakra stjómarmanna.
Kristín Mjöll Kristinsdóttir hefur gengt starfi eftirlitsmanns prestssetra á þessu ári og
em henni þökkuð farsæl og vel unnin störf. Sjóðurinn hefur samning við biskupsstofu
um skjalavörslu, bókhald og fjárvörslu, svo og aðstöðu fyrir skrifstofu.
Starfsemi
Verkefni stjómar sjóðsins hafa verið eins og undanfarin ár fjölþætt. Ber þar þó hæst
ákvarðanir um viðhald einstakra prestssetra. Á síðasta ári var prestum skrifað bréf og
þeir beðnir um að koma til sjóðstjómar sínum athugasemdum og ábendingum um hver
væri þörf á lagfæringum og breytingum. í ljósi þeirra svara sem fengust var ákveðið
að forgangsraða ákveðnum verkefnum þannig að ytri kápa prestssetranna héldi vatni
og vindum og síðan að lagnakerfi húsanna störfuðu á eðlilegan hátt. Má sjá þess stað í
reikningum sjóðsins þar sem framlög til rafmagns og pípulagna hafa margfaldast svo
og til klæðninga, málunar og þéttinga. Það er endalaust deiluefni meðal presta hvort
þetta prestssetur eða hitt prestssetrið eigi að vera á undan varðandi viðhald og hversu
mikið eigi að gera. Þannig er ekki ætlunin að rekja einstök verkefni en vísað í lista
sem fylgir þessari skýrslu ásamt ársreikningi sjóðsins fyrir árið 1999, en í listanum
áðumefnda er nákvæmlega tilgreind sú upphæð, á hvert prestssetur, sem varið hefur
verið til viðhalds og viðgerða. Það er stefna stjómar sjóðsins að sem allra fyrst verði
hægt að gera heildstæða úttekt á öllum eignum prestssetranna og raða viðgerðum
niður í ákveðna röð sem síðan verður fylgt. Með því móti verði haft betri stjóm á
þeim fjármunum sem fara í viðhald eignanna svo og að geta á ákveðinn og
sanngjaman hátt sagt prestum og fjölskyldum þeirra hvenær og hvemig verður staðið
að viðgerðum. I þessu sambandi hefur verið ákveðið að kaupa tölvukerfi sem heldur
utan um allar eignir prestssetranna, ástand þeirra og viðhald.
Eins og sagt var frá í síðustu skýrslu var verið að byggja nýtt íbúðarhús í Laufási í
Eyjafirði. Er ánægjulegt að skýra frá að á miðju sumri flutti prestsfjölskyldan inn. Er
húsið hið glæsilegasta og sómir sér vel á þessum sögufræga stað. Aðkoman að húsum,
safni og kirkju verið löguð og er hún nú mjög staðarleg. Verðið á nýja húsinu var um
115 þús kr. fm sem verður að teljast mjög gott, en í heild kostaði húsið um 27 m. kr.
Verið er að laga vatnsveitu staðarins og að því loknu má segja að mál Laufáss séu
leyst á farsælan hátt.
Það er hins vegar að segja af málefnum Útskála að ekki er komin lausn í það mál og
hefur það mál tekið ómældan tíma hjá starfsmanni og formanni sjóðsins. Að loknu
kirkjuþingi s.l. haust var farið í útboð á innréttingum í prestssetrinu á Útskálum. Kom
45