Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 65
Að tillögu allsherjamefndar samþykkir kirkjuþing einnig eftirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing beinir því til kirkjuráðs að skipa sérstaka nefnd sem skoði hugmyndir um
sérstaka starfsmenntunarstofnun þjóðkirkjunnar sem kynntar hafa verið á þessu
kirkjuþingi.
Fylgiskjal frá allsherjarnefnd um starfmenntunarstofnun kirkjunnar. Lagt fram
af Gunnari Kristjánssyni.
Kirkjuþing 2000 samþykkir að undirbúin verði stofnun starfsmenntunarstofnunar
þjóðkirkjunnar. Tilgangur með starfi hennar verði alhliða menntunar- og
rannsóknarstarfsemi á hinum ýmsu sviðum kirkjulegs starfs. Þar skal sameina í einni
stofhun Tónskóla kirkjunnar, guðffæðinám í helgisiðafræðum og öðrum þáttum
praktískrar guðfræði og Leikmannaskóla kirkjunnar. Stofnunin skal einnig vera
vettvangur fyrir hvers kyns endurmenntun og námskeiðahald fyrir þá sem koma að
kirkjulegu starfi með einum eða öðrum hætti.
Kirkjuþing árið 2000 skal kjósa fimm manna nefnd til þess að undirbúa málið í
hendur kirkjuþings 2001 sem tekur ákvörðun um framhald þess.
Greinargerð
Hér er um að ræða nýtt fyrirkomulag á skipan hinna praktísku þátta í kirkjulegu starfi
sem að mörgu leyti er sniðin eftir starfsháttum nágrannakirkna okkar. Margt styður að
slík uppstokkun fari fram einmitt núna. Þama er m.a. átt við að tónlistarnám sem
Tónskólinn býður upp á og nám í helgisiðaffæðum við Háskólann verði stundað í
náinni samvinnu. Þama fari öll ffæðsla fram í praktískri guðfræði (helgisiðafræðum,
prédikunarfræðum, bamaffæðslu, sálgæslu og predikunarffæðum og í
tónlistarfræðum) einnig verði þar stunduð símenntun á öllum þessum sviðum og
aðstaða verði til rannsókna. Leikmannaskólinn verði einnig undir sama hatti.
Með þessu móti skapast nýr vettvangur þar sem fræðigreinamar styðja hver aðra, þeir
fjölmörgu sem koma að kirkjulegu starfi geta með þessu móti átt náið samstarf sem
oft hefur skort á. I reynd yrði þarna um að ræða samspil allra þeirra sem koma að
kirkjulegu starfi að meira eða minna leyti. Hér yrðu sköpuð skilyrði fyrir gróskumikla
endumýjun á þessum viðamikla þætti í starfi kirkjunnar.
Það er alkunnugt af umræðum á kirkjuþingi að betur þarf að sinna hinum praktísku
þáttum guðfræðinámsins, safnaðarstarf tekur sífelldum breytingum og starfsfólki
fjölgar í fjölmennum söfnuðum. Nauðsynlegt er að komið verði á fót
starfsmenntunarstofnun kirkjunnar (vinnuheiti) sem getur fylgst með nýjungum í
safnaðarstarfi innanlands og utan, stuðlað að aðlögun erlendra hugmynda fyrir
íslenskrar aðstæður og stundað jafnframt rannsóknir. Samþætting á hinum ýmsu
greinum hins praktíska náms fyrir guðfræðinga, djákna, tónlistarfólk, annað starfsfólk
safnaðanna og aðra sem til greina koma er afar brýn.
Arið 2000 væri ár til að líta fram í tímann að þessu leyti ekki síst með hliðsjón af því
að unnið er að starfsreglum fyrir tónskóla þjóðkirkjunnar og leikmannaskólann og
umræður um praktískt nám í guðfræðideild H.í. eru í gangi. Fullyrða má að almennur
skilningur sá á þörf fyrir stóraukna menntun presta í praktískri guðfræði (einnig í
praktikum eða starfsþjálfun).
61