Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 88
Ályktun
um sögu biskupsstólanna
29. mál, flutt af Gunnari Kristjánssyni, Sigurði Sigurðarsyni og Bolla Gústavssyni
Tillaga til þingsályktunar um sögu biskupsstólanna
Kirkjuþing 2000 samþykkir að láta semja sögu biskupsstólanna í Skálholti og á
Hólum. Skal stefnt að því að verkið komi út árið 2006 í tilefni af 950 ára afmæli
biskupsstóls í Skálholti og 900 ára afmælis biskupsstóls á Hólum. Verkið skal fjalla
um efnið út frá kirkjusögu, menningarsögu, hagsögu og félagssögu. Það skal byggjast
á nauðsynlegum ffumrannsóknum á efiiinu en að öðru leyti á rannsóknum sem þegar
hafa verið gerðar. Kirkjuþing skal skipa fimm manna ritstjóm. I ritstjóminni eiga sæti:
fulltrúi kirkjuráðs og sé hann fjármálastjóri, tveir sérmenntaðir menn til faglegrar
forystu sem kirkjuþing kýs, og vígslubiskupar eða fulltrúar þeirra, ffamkvæmdanefhd
skipa fulltrúar kirkjuþings og kirkjuráðs. Ritstjóm skal annast fjármál, skipuleggja
ffamkvæmd verksins, fylgjast með ffamgangi þess og annast faglega tilsjón. Þá skal
hún ráða ritstjóra og höfunda að verkinu. Ritstjóm skal gera kirkjuþingi grein fyrir
framgangi verksins árlega.
Greinargerð undirbúningsnefndar til kirkjuþings 2000.
Kirkjuþing 1999 samþykkti eftirfarandi tillögu til þingsályktunar:
Kirkjuþing 1999 ályktar að hafinn skuli undirbúningur að ritun á sögu
biskupsstólanna í Skálholti og á Hólum. Skal stefnt að því að verkið komi út árið 2006
í tileffii af 950 ára afmæli biskupsstóls í Skálholti og 900 ára affnælis biskupsstóls að
Hólum. Verkið skal fjalla um efiúð út ffá kirkjusögu, menningarsögu og hagsögu. Það
skal byggjast á nauðsynlegum ffumrannsóknum á efninu en að öðm leyti á þeim
rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar. Til þess að undirbúa rannsóknir og ritun á
væntanlegu ritverki skipar kirkjuþing sex manna undirbúningsnefnd. Nefndin skal
m.a. kanna heimildir um stólana, bæði í handritum og prentuðu máli, innanlands og
utan, einnig skal hún leggja drög að efnistökum og loks skal hún gera grein fyrir
kostnaði og benda á leiðir til að fjármagna verkið. Kirkjuráð standi straum af kostnaði
við störf nefhdarinnar úr kristnisjóði/ kirkjumálasjóði. Starfsnefndin skal skila
ítarlegri greinargerð fyrir kirkjuþing haustið 2000.
Flutningsmenn voru Dr. Gunnar Kristjánsson (ffsm), sr. Sigurður Sigurðarson og sr.
Bolli Gústavsson.
í nefndina kaus kirkjuþing flutningsmennina þijá og auk þeirra Guðrúnu Ásu
Grímsdóttur, Guðrúnu Nordal og dr. Hjalta Hugason, nefndin kallaði síðan til
samstarfs sagnfræðingana Gunnar F. Guðmundsson og Jón Þ. Þór. Á fundi sínum 7.
des. 1999 veitti kirkjuráð 850.000 framlag til nefndarstarfanna og hófst nefndin handa
í mars.
Fundir vom haldnir í Norræna húsinu 21. mars, 11. apríl, 3. maí, 18.maíog 13.júní
og lokafundur var haldinn í Skálholti 15. sept. Rætt var um verkefnið frá mörgum
sjónarhomum, einnig var farið yfir það sem ritað hefur verið um efnið og var þar m.a.
stuðst við greinargott heimildasafn Guðrúnar Ásu Grímsdóttur. Kom það að góðum
notum. Einnig kallaði nefndin Karl Magnús Kristjánsson, fjármálastjóra Alþingis á
sinn fund til að ræða fjárhagslega hlið útgáfunnar, var til hans leitað vegna Kristni á
íslandi sem Alþingi gaf út og því eðlilegt að leita upplýsinga þangað um það efhi. Sá
84