Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 24
kirkjulaganna þar sem ijallað er um kirkjuráð, m.a. tengsl þess við kirkjuþing og
biskupsembættið.
Aðrar starfsreglur sem kirkjuráð leggur hér fram taka mið af þessum reglum um
kirkjuráð og þeirri hugmyndafræði sem þær byggja á.
Tillaga að starfsreglum um fastanefndir kirkjunnar.
Reglunum er ætlað að skilgreina hvað felst í hugtakinu fastanefnd kirkjunnar. Settar
eru á laggimar fjórar fastanefndir sem hver um sig vinnur á helstu starfssviðum
kirkjunnar, helgihaldi, fræðslu og kærleiksþjónustu auk verkefna á sviði þjóðmála.
Fastanefndimar eiga að vera uppspretta hugmynda og stefnumótandi tillagna fyrir
kirkjuþing.
Tillaga að starfsreglum um biskupskjör.
Reglumar sem eru samdar að tilhlutan biskupafundar eiga að einfalda kerfíð frá því
sem verið hefur. Lagt er til að sömu reglur gildi í meginatriðum um kjör biskups og
vígslubiskupa. Gert er ráð fyrir að tilnefna megi kjörgengan mann eftir ákveðnum
reglum. Jafnffamt er undirstrikað að kjörgengi við vígslubiskupskjör er ekki bundið
búsetu í hlutaðeigandi vígslubiskups umdæmi.
Tillaga að starfsreglum um biskupafund.
Reglumar eru samdar að tilhlutan biskupafundar. Þær skilgreina helstu verkefni
biskupafundar með almennum hætti og byggjast að nokkru leyti á reynslu sem þegar
er fengin.
Tillaga að starfsreglum um vígslubiskupa.
Reglumar em einnig samdar að tilhlutan biskupafundar. Þær skilgreina stöðu
vígslubiskupa, skyldur þeirra og ábyrgð. Reglumar em fremur almenns eðlis þótt þær
eigi að ná yfir öll helstu verkefni vígslubiskupa. í reglunum er lögð til sú breyting að
Múlaprófastsdæmi og Austfjarðaprófastsdæmi færast undir umdæmi vígslubiskups á
Hólum.
Tillaga að starfsreglum um kirkjur og safnaðarheimili.
Reglurnar taka á helstu grundvallaratriðum um kirkjur og safnaðarheimili, stjóm,
afnot, rekstur, helgi, breytingar á notkun eða brottnám o.s.ffv. Reglumar byggjast að
miklu leyti á eldri reglum frá 1994 um sama efhi þótt nokkur nýmæli sé að finna.
Sérstaklega skal minnst á fyrirmæli um meðferð kirkna sem ekki er ljóst hver fer með
umráð yfir.
Tillögur að starfsreglum um fræðslu fyrir leikmenn innan kirkjunnar, um sérhæfða
þjónustu kirkjunnar við fjölskylduna og um söngmál og tónlistarffæðslu
þjóðkirkjunnar.
Þessir þrír bálkar koma fyrir kirkjuþing í annað sinn, en þeir hlutu ekki afgreiðslu á
síðasta þingi. Þeir eru samhæfðir þannig að þótt þeir Ijalli um mismunandi svið, gilda
í meginatriðum sömu grundvallarsjónarmið um rekstur stofnananna/verkefnanna og
stöðu. Verður að skýra bálkana til samræmis við tillögur að starfsreglum um kirkjuráð
en þar er ákveðið samhengi á milli.
20