Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 99
Megináhersla þeirra sem best þekkja til í þessum heimi er að vinna með fjölmiðlum en
ekki láta þá stjóma ferðinni. Kirkjan hefur oft fallið í þá gryfju og ýmsar stofnanir að vera
„reaktívar“ fremur en „próaktívar“, svo að maður sletti nú í þessum efnum, að láta hrekja
sig í vöm. Það er sem sagt að stofnunin gætir þess að leitast við að ráða ferðinni sem allra
mest.
Það þykir ekki heppilegt að koma með margar fréttir af hinum ýmsu atburðum í einu því
að þá dreifist athyglin og óljóst getur orðið hvað verið er að leggja áherslu á. Menn vilja
meina að það sé afar mikilvægt fyrir stofnun eins og kirkjuna að afmarka ákveðna þætti,
tvö, þrjú viðfangsefni sem meginstef sem kirkjan haldi á lofti og þau séu unnin vel fyrir
fjölmiðla á þann hátt að þau vekja athygli því að taktur nútímaijölmiðlunar er svo
gríðarlega hraður og athyglin er afar skammvinn. Það má segja að þessi aðferð hafi verið
nýtt í átaksverkefnum kirkjunnar. Meginstef ársins í ár hefur verið auðvitað kristnihátíð
og það sem því tengist í héruðum og á landsvísu og svo átak Hjálparstarfs kirkjunnar um
böm í ánauð. Það verk vakti töluverða athygli í ijölmiðlum og í þjóðfélaginu öllu og er
gott dæmi um fjölmiðlaverkefni sem vekur jákvæð viðbrögð. Næst horfum við til þemu
sem tengjast trú og sið á 21. öldinni í tengslum við hugsanlegt, væntanlegt landsþing
kirkjunnar.
Táknmynd eða „lógó“ þjóðkirkjunnar var hannað í fyrravor eins og þið vitið og það má
líta á það sem þátt í því að kynna kirkjuna út á við. Það er á bréfsefni kirkjuráðs,
kirkjuþings, Biskupsstofu og annarra aðila kirkjustjórnarinnar og er stefnt að því auka
útbreiðslu þess þannig að ýmsar stofnanir kirkjunnar geti notfært sér það. Það var gerð
gjörbreyting á útgáfu fréttabréfsins Víðförla. Stefna þess var skýrar mörkuð sem
fréttabréfs og ráðinn var sérstakur ritstjóri í hlutastarf, en áður hvíldi vinnan á starfsfólki
Biskupsstofu. Það er Adda Steina Bjömsdóttir sem hefur ritstýrt Víðförla. Hann kemur út
mánaðarlega og fer víða á stofnanir og ijölmiðla og iðulega verðum við vör við að
fjölmiðlar grípa einmitt upp fréttamola úr Víðförla og vekja þannig athygli á málefnum
sem snerta kirkjuna heima og heiman. Framkvæmd þessarar útgáfu er á vegum
Skálholtsútgáfunnar.
I maí sl. var haldin ráðstefna á Biskupsstofu um þjóðkirkjuna á veraldarvefnum,
internetinu, og þar var stefnt saman fólki sern komið hefur að ijölmiðlamálum innan
kirkjunnar auk fulltrúa kirkjuráðs, biskups, Skálholtsútgáfunnar og fleiri. Sérstakir gestir
ráðstefnunnar voru Asgeir Friðgeirsson framkvæmdastjóri íslandsnets, Haukur
Amþórsson forstöðumaður upplýsingasviðs Alþingis, Jóhannes Erlingsson vefari hjá
Eiðfaxa, Jónatan Einarsson frá Inn og Jón Heiðar Þorsteinsson frá Gæðamiðlun. Þetta eru
allt menn sem eru afar framarlega á þessum vettvangi. Þeir fjalla allir um reynslu sína af
netinu sem miðli til að koma ákveðnum boðskap til skila til sem flestra og í framhaldi af
þessari ráðstefnu voru tekin saman nokkur atriði sem þarfnast nánari skoðunar og verða
skoðuð. Þetta er gríðarlega krefjandi heimur sem býður upp á mikla möguleika ef vel er á
haldið. Megináherslurnar sem komu fram varðandi nýtingu vefsins voru að í stað
heimasíðu sem er svona stofnanatengd þá yrði frekari stefnt að því að netgáttin, eins og
menn vilja kalla þetta, væri fyrst og fremst hugsuð sem aðlaðandi inngöngudyr að ýmsu
því sem til er um trúarleg og andleg málefni. Þá er mikilvægt að þessari netgátt sé
viðhaldið þannig að tengingum sé haldið lifandi og opnum, fréttir skrifaðar og pósti
95