Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 56
Starfsreglur um vígslubiskupa
10. mál, flutt af kirkjuráði
1. gr. Biskupsdæmi Islands skiptist í tvö vígslubiskupsumdæmi, Skálholtsumdæmi
og Hólaumdæmi.
2. gr. Vígslubiskupar starfa á grundvelli laga um stöðu, stjóm og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997.
3. gr. Vígslubiskup sá, sem eldri er að biskupsvígslu, gegnir störfum biskups Islands
í forfóllum samkvæmt 15. gr. laga nr. 78/1997.
4. gr. Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir Múla-, Austfjarða-, Skaffafells-,
Rangárvalla-, Ámes-, Kjalames-, Reykjavíkur eystra-, Reykjavíkur vestra-,
Borgarfjarðar-, Snæfellsness - og Dala-, Barðastrandar - og Isafjarðarprófastsdæmi.
Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir Húnavatns-, Skagaljarðar-, Eyjafjarðar -
og Þingeyjarprófastdæmi.
5. gr. Vígslubiskupar em biskupi íslands til aðstoðar um kirkjuleg málefni. Þeir
annast biskupsverk að ósk biskups íslands og í umboði hans, svo sem að vígja
djákna, presta, kirkjur og kapellur. Þeir hafa í umboði biskups Islands tilsjón með að
stefnumörkun kirkjunnar sé lfamfylgt hvað varðar helgihald, boðun, fræðslu og
kærleiksþjónustu kirkjunnar í umdæmum sínum og hafa tilsjón með
starfsmannahaldi í umdæmum sínum einkum hvað varðar handleiðslu, símenntun og
sálgæslu presta og starfsmanna kirkjunnar. Þeir vísitera presta og söfnuði í
umdæmum sínum og bera ábyrgð á helgihaldi dómkirkna sinna í samráði við
viðkomandi sóknarprest.
6. gr. Vígslubiskupar bera ábyrgð á uppbyggingu biskupsstólanna effir því umboði
sem kirkjuráð veitir. Þeir eru kirkjuráði til stuðnings og samráðs í málefnum
biskupsstólanna svo og öðrum kirkjulegum stjómvöldum og koma fram í nafni
staðanna og umdæmanna effir því sem við á.
7. gr. Vígslubiskupar leita sátta komi upp deilumál innan safnaða eða á öðrum
kirkjulegum vettvangi í umdæmum þeirra. Skulu þær sáttaumleitanir að jafnaði fara
fram að undangengnum sáttaumleitunum prófasts og í samráði við hann ef heppilegt
má telja.
8. gr. Vígslubiskupum ber að starfrækja embætti sín á grundvelli árlegrar
fjárhagsáætlunar kirkjuráðs fyrir embætti þeirra.
9. gr. Vígslubiskupar sitja kirkjuþing með málfrelsi og tillögurétt, sbr. starfsreglur
um kirkjuþing.
Vígslubiskupar sitja fundi kirkjuráðs þegar málefni biskupsstólanna eru til
umfjöllunar, sbr. starfsreglur um kirkjuráð.
Vígslubiskupar sitja biskupafund, sbr. 19. gr. laga 78/1997 og starfsreglur um
biskupafund.
Vígslubiskupar sitja prófastafund, sbr. starfsreglur um prófasta.
Vígslubiskupar eiga sæti í kenningamefnd, sbr. 14. gr. laga 78/1997 og starfsreglur
um kenningamefhd.
52