Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 56

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Page 56
Starfsreglur um vígslubiskupa 10. mál, flutt af kirkjuráði 1. gr. Biskupsdæmi Islands skiptist í tvö vígslubiskupsumdæmi, Skálholtsumdæmi og Hólaumdæmi. 2. gr. Vígslubiskupar starfa á grundvelli laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. 3. gr. Vígslubiskup sá, sem eldri er að biskupsvígslu, gegnir störfum biskups Islands í forfóllum samkvæmt 15. gr. laga nr. 78/1997. 4. gr. Umdæmi vígslubiskups í Skálholti nær yfir Múla-, Austfjarða-, Skaffafells-, Rangárvalla-, Ámes-, Kjalames-, Reykjavíkur eystra-, Reykjavíkur vestra-, Borgarfjarðar-, Snæfellsness - og Dala-, Barðastrandar - og Isafjarðarprófastsdæmi. Umdæmi vígslubiskups á Hólum nær yfir Húnavatns-, Skagaljarðar-, Eyjafjarðar - og Þingeyjarprófastdæmi. 5. gr. Vígslubiskupar em biskupi íslands til aðstoðar um kirkjuleg málefni. Þeir annast biskupsverk að ósk biskups íslands og í umboði hans, svo sem að vígja djákna, presta, kirkjur og kapellur. Þeir hafa í umboði biskups Islands tilsjón með að stefnumörkun kirkjunnar sé lfamfylgt hvað varðar helgihald, boðun, fræðslu og kærleiksþjónustu kirkjunnar í umdæmum sínum og hafa tilsjón með starfsmannahaldi í umdæmum sínum einkum hvað varðar handleiðslu, símenntun og sálgæslu presta og starfsmanna kirkjunnar. Þeir vísitera presta og söfnuði í umdæmum sínum og bera ábyrgð á helgihaldi dómkirkna sinna í samráði við viðkomandi sóknarprest. 6. gr. Vígslubiskupar bera ábyrgð á uppbyggingu biskupsstólanna effir því umboði sem kirkjuráð veitir. Þeir eru kirkjuráði til stuðnings og samráðs í málefnum biskupsstólanna svo og öðrum kirkjulegum stjómvöldum og koma fram í nafni staðanna og umdæmanna effir því sem við á. 7. gr. Vígslubiskupar leita sátta komi upp deilumál innan safnaða eða á öðrum kirkjulegum vettvangi í umdæmum þeirra. Skulu þær sáttaumleitanir að jafnaði fara fram að undangengnum sáttaumleitunum prófasts og í samráði við hann ef heppilegt má telja. 8. gr. Vígslubiskupum ber að starfrækja embætti sín á grundvelli árlegrar fjárhagsáætlunar kirkjuráðs fyrir embætti þeirra. 9. gr. Vígslubiskupar sitja kirkjuþing með málfrelsi og tillögurétt, sbr. starfsreglur um kirkjuþing. Vígslubiskupar sitja fundi kirkjuráðs þegar málefni biskupsstólanna eru til umfjöllunar, sbr. starfsreglur um kirkjuráð. Vígslubiskupar sitja biskupafund, sbr. 19. gr. laga 78/1997 og starfsreglur um biskupafund. Vígslubiskupar sitja prófastafund, sbr. starfsreglur um prófasta. Vígslubiskupar eiga sæti í kenningamefnd, sbr. 14. gr. laga 78/1997 og starfsreglur um kenningamefhd. 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.