Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 91
Tillaga
til þingsályktunar um að leitast verði við að ráða pílagrímaprest á vegum
Þjóðkirkjunnar til tveggja ára í 30% starfshlutfalli
30. mál, flutt af Sigurði Sigurðarsyni
Kirkjuþing beinir þeim tilmælum til Kirkjuráðs og Biskups Islands, að leitast verði
við að ráða pílagrímaprest á vegum Þjóðkirkjunnar til tveggja ára í 30% starfshlutfalli.
Greinargerð.
Undanfarinn áratug hefur orðið mikil vakning meðal kirkna í Evrópu um að
endurvekja pílagarímaferðir til helgra staða. Fjöldi fólks leggur nú í slíkar göngur, og
er okkur nærtækast að líta til göngunnar sem nú er farin árlega frá Osló til Niðaróss.
Göngur af þessu tagi eru nú farnar á öllum Norðurlöndum og þar hafa þær orðið
samkirkjuleg verkefni og vaxtarbroddurinn í samkirkjulegu starfi. Pílagrímaprestar
eru nú starfandi í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Sjá þeir um skipulagningu og
kynningu þessara ferða, og eru auk þess oft leiðsögumenn og þátttakendur í þeim. Hér
á landi hafa nokkrar slíkar göngur verið famar víða um land.
Um þessar mundir er að ljúka merkingu svonefndrar biskupaleiðar milli Skálholts og
Þingvalla. Er það kjörin leið til skipulegrar starfsemi af þessu tagi. Aformað er að
fleiri slíkar leiðir verði varðaðar og stuðla áhugasamtök um útivist og ferðalög að
framkvæmd þess.
Gildi þess að Þjóðkirkjan komi að slíku starfi og sýni þar nokkuð frumkvæði er
ótvírætt. Með því er minnt á helgistaði landsins og helgun þess gegnum kristna sögu.
í því gefst tækifæri til að tengja trúarlega iðkun síauknum áhuga á útivist og
umhverfisvemd. Loks felst í þessu tækifæri til uppbyggilegra tengsla við önnur
kristin trúfélög, eins og reyndin hefur orðið á hinum Norðurlöndunum.
Hér er stungið upp á að gerð sé tilraun til að koma á fót skipulegu starfi um
pílagrímsferðir. Prestur í þriðjungsstarfi mundi geta kannað möguleikana, haft
fmmkvæði um skipulagningu og stofnað til tengsla við önnur samtök, sem e.t.v. væm
fús til samstarfs um verkefnið. Hann þarf einnig að afla einhverra gagna til
leiðbeiningar um helgihald og íhugunarefni á pílagrímagöngum. Loks má hugsa sér að
þar sem hann gerist leiðsögumaður um pílagrímaslóðir komi þátttakendur og
heimaaðilar til og taki þátt í kostnaði við starf hans. Ráðning slíks prests mundi fela í
sér frumkvæði Þjóðkirkjunnar um málefni, sem efalaust verður ofarlega á baugi á
næstu ámm hver sem svo grípur frumkvæðið.
Að tillögu íjárhagsnefndar afgreiðir kirkjuþing málið með eftirfarandi
ÁLYKTUN
Kirkjuþing beinir þeim tilmælum til biskups íslands, að hann beiti sér fyrir því, að
fenginni tillögu biskupafundar, að prestum sem em í sérstökum verkefnum verði falið
að annast pílagrímaferðir til helgra staða.
87