Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 26
Nánari upplýsingar um úthlutanir er að finna í ársreikningum hlutaðeigandi sjóða fyrir
1999 en úthlutun þessa árs er að finna í fylgiskjölum um fjármál þjóðkirkjunnar.
Úthlutun styrkja úr Jöfnunarsjóði sókna hefur verið færð fram í desember þar sem
úthlutað er fyrir næsta ár. Þetta hefur mælst vel fyrir og ætti að auðvelda sóknum að
skipuleggja framkvæmdir og fjármál með skilvirkari hætti. Ennffemur hefur
Jöfnunarsjóður gengið í ábyrgðir fyrir lánum sókna hjá lánastofhunum og síðan hafa
nokkrar sóknir fengið vilyrði um úthlutun styrkja fram í tímann. Er ljóst að þetta
greiðir mjög fyrir allri áætlanagerð sóknanna og möguleikum þeirra að afla fjár hjá
lánastofnunum til nauðsynlegra framkvæmda. Með tilkomu ábyrgðardeildar
Jöfnunarsjóðs verður þessi þáttur fjárstjórnar styrktur enn.
Kirkjuráð samþykkti að hanna ný umsóknareyðublöð og færa þau í þann búning að
unnt sé að nálgast þau og fylla út í gegnum kirkjuvefinn. Reynt verður að ljúka því á
næsta ári.
Önnur mál
Endurskoðun gildandi starfsreglna.
í einstökum starfsreglubálkum eru endurskoðunarákvæði. Þeir eru starfsreglur um:
a) kirkjuþing (ákv. til bráðabirgða)
b) úrskurðamefnd og áfrýjunamefnd þjóðkirkjunnar (36. gr.)
c) presta (45. gr.)
d) meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar (10. gr.)
í samráði við forseta kirkjuþings er litið svo á að endurskoðun á starfsreglum um
kirkjuþing hafi farið firam, svo og á starfsreglum um presta, en báðir þessir bálkar hafa
sætt endurskoðun frá því þeir voru settir. Flutt er tillaga á kirkjuþingi 2000 um
breyting á starfsreglum um kirkjuþing nr. 729/1998, þ.e. á 35. gr. Tillaga um breyting
á starfsreglum um úrskurðamefnd og áfrýjunamefnd þjóðkirkjunnar er lögð fram á
kirkjuþingi 2000 eins og fyrr segir. Hvað varðar starfsreglur um meðferð
kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar þykir ekki ástæða til endurskoðunar nú
þar sem ekki hefur reynt á reglumar og ekkert það komið fram í dag sem þykir gefa
tilefni til slíkrar endurskoðunar. Rétt er að taka fram að vitaskuld geta allir
starfsreglubálkar komið til endurskoðunar hvenær sem er enda hverjum
kirkjuþingsfulltrúa heimilt að leggja fram slíkar tillögur.
Upplýsingamál
Akveðið var að endumýja tölvubúnað á biskupsstofu að höfðu samráði við ýmsa aðila
m.a. Ríkiskaup. Ákveðið var að leita ráðgjafar hlutlauss aðila um stefnumörkun í
málaflokknum. Þegar er byrjað að vinna samkvæmt tillögum hans, einkum hvað
varðar þjónustu við búnaðinn, tengingar við umheiminn, rekstur heimasíðu og fleira.
Kirkjuráð beitti sér fyrir fundi sérfræðinga um vefgerð og heimasíðu kirkjunnar.
Leiddu þar saman hesta sína fólk úr heimi tölvu og upplýsingamála og prestar og
starfsfólk kirkjunnar svo og fulltrúar kirkjuráðs og biskups. Var álit sérfræðinga að
heimasíður þróist nú mun meir í átt til samskipta en að vera beinar upplýsingasíður.
Mikilvægt er að skoða vel þessa samskiptabyltingu sem breytist nánast daglega með
sífellt nýrri tækni. Töluvert kostnaðarsamt er að fylgjast með þeirri þróun. Engu að
síður hlýtur boðandi kirkja að verða að takast á við þessa þróun boðmiðlunar og
samskipta af alvöru.
22