Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 50
bæði áætlun okkar verkfræðinga og síðan útboðið sjálft verkefnisstjóminni á óvart
þ.e. að kostnaður við þetta verk yrði gífurlega hár, þannig að stjómin sá sér þann kost
vænstan að fresta málinu og hugsa það á nýjan leik. Var öllum tilboðum hafnað, en
skoðaðir þeir möguleikar að fá ijármagn annars staðar þ.e. úr menningar- og
varðveislusjóðum til verksins. Húsafriðunamefnd styrkir verkið lítillega, en
Endurbótasjóður menningarbygginga kom með myndarlegt framlag nú á
haustmánuðum og var þá ætlunin að hefjast aftur handa. Þá hafði reynt svo á
fjölskylduhagi sóknarprestsins að hann fór mjög ákveðið fram á varanlegt húsnæði og
það strax. Stjóm Prestssetrasjóðs brást við þeirri ósk með því að auglýsa eftir húsnæði
í prestakallinu og er verið að vinna í þessu máli. Ljóst er að það fer verulega eftir
þeirri niðurstöðu sem verður núna í húsamálum prestsins hvort áfram verður haldið
við endurbyggingu prestssetursins á Utskálum eða hvort þau mál verði endurskoðuð á
nýjan leik.
I lok þessa starfsárs er efst á lista stærri verkefna sjóðsins bygging íbúðarhúss í
Glaumbæ í Skagafirði.
Á síðasta kirkjuþingi var Selfossi bætt á lista þeirra staða sem eiga að hafa prestssetui'.
Á þeim lista em nú tveir staðir án prestsseturs þ.e. Selfoss og svo Egilsstaðir, en
presturinn þar býr í eigin húsi og hefur svo verið frá því áður en Prestssetrasjóður tók
til starfa árið 1994.
í nóvember 1999 flutti þáverandi ábúandi Bergþórshvols I af jörðinni, en prestssetur
hafði verið lagt þar af rúmu ári áður. Var óskað eftir heimild á Alþingi til að selja
jörðina, sem fékkst, en þar sem ekki er heimild frá kirkjuþingi hefur jörðin ekki farið í
almenna sölu. Er annars vegar húsið leigt og hins vegar jörðin sjálf til næstu fardaga.
Einnig er í leigu prestssetrið á Bíldudal, en vegna óvissu um prest á þeim stað er það
einungis leigt til næstu áramóta. Þá er prestssetrið í Grindavík í leigu, en nú var þörf
fyrir það þar sem sóknarpresturinn er að fara í fæðingarleyfi m.m. og verður
væntanlega frá störfum vel á annað ár.
Ekki er hægt að ljúka þessari skýrslu án þess að minnast á leigu og haldsbréf. Eitt af
verkum stjómar var að endurskoða leigu, afgjald prestssetra. Hafði það ekki verið gert
frá því að haldsbréfunum var komið á, því varð vemleg hækkun á upphæð afgjaldsins
og tóku prestar því mis vel. Þá er enn svo að ekki hefur tekist að ganga frá haldsbréfi
hjá öllum prestum sem sitja prestssetur. Er nú unnið að því í samráði við kirkjuráð að
ganga í það mál og ljúka því þannig að allir prestar sitji við sama borð.
Ráðstöfun greiðslumarks sauðfjár á prestssetursjörðum hefur mjög verið rædd innan
stjómarinnar í tilefni af tilboði ríkisins um uppkaup. Tveir prestar hafa sótt um slík
uppkaup og veitti stjóm Prestssetrasjóðs leyfi til þess með fyrirvara. Stjóm
Prestssetrasjóðs telur ákvörðun um meðferð og ráðstöfun greiðslumarks varða svo
hagi presta að hún hefur ákveðið að leita samráðs við Prestafélag íslands, einnig með
það fyrir augum að marka heildarstefnu um búrekstur og aðra uppbyggingu á
prestssetrum og kirkjustöðum. Er sérstaklega horft til varðveislu menningarverðmæta,
menningartengdrar ferðaþjónustu, náttúrufars og annars sem telja má til nútímalegrar
uppbyggingar í sveitum, auk hins hefðbundna landbúnaðar.
Varðandi fjárhagsstöðu prestssetrasjóðs þá var sjóðurinn rekinn með halla á árinu
1999 og kemur það ekki á óvart. Tekjur sjóðsins duga rétt fyrir almennu viðhaldi og
rekstri sjóðsins, en ekki á neinn hátt til kaupa eða byggingar á nýjum bústöðum, eða
46