Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Side 27

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Side 27
Höfundaréttarmál. Viðræður standa yfir við Fjölís, sem eru samtök á sviði höfundarréttar, um heimildir kirkjulegra aðila til hagnýtingar verka (texta, nótur, o.fl.) og greiðslur í því sambandi. Ríkisvaldið hefur þegar gengið til samninga við samtökin en litið er svo á að sóknir landsins og sérstofnanir kirkjunnar standi utan við það samkomulag. Einkum er þar átt við ljósritun nótna sem kirkjukórar kunna að nýta í starfi sínu. Líknar - og viðlagasjóður kirkjunnar og Fræðslu-, kynningar- og útgáfusjóður. Dóms og kirkjumálaráðherra hefur staðfest skipulagsskrár fyrir þessa tvo sjóði og hafa þær birst í Stjómartíðindum. Þar með em sjóðimir formlega teknir til starfa. Verður brátt auglýst eftir umsóknum. Val á prestum. Kirkjuráð hefur á fundum sínum rætt um fyrirkomulag á vali og veitingu prestsembætta. Talsverðar umræður og gagnrýni hefur verið á lofti innan kirkjunnar um þessi mál og talið ljóst að í sumum tilvikum hafi ekki verið farið eftir starfsreglum og leiðbeiningarreglum við val á prestsembættum. Þess skal getið að tvisvar hefur niðurstaða valnefndar verið kærð til Kærunefndar jafnréttismála og í báðum tilvikum hefur kærunefnd talið að brotið hafi verið á umsækjanda. Er þá veitingavaldinu falið að finna ásættanlega lausn. Hefur það haft í for með sér að embætti biskups íslands hefur orðið að taka á sig greiðslur bóta. Tekið skal ffam að á þeim tíma sem núverandi reglur hafa gilt hafa verið veitt 16 sóknarprestsembætti og 4 prestsembætti. Framundan er val í þremur prestaköllum. Úrskurðamefnd og áfrýjunamefnd. Frá síðasta kirkjuþingi hafa tvö mál hlotið úrlausn úrskurðamefndar kirkjunnar frá síðasta kirkjuþingi. Annars vegar mál viðvíkjandi val og veitingu embættis sóknarprests í Grenjaðarstaðarprestakalli og hins vegar mál varðandi Holtsprestakall í ísafjarðarprófastsdæmi. Samkvæmt 13. gr. þjóðkirkjulaganna hefur kirkjuráð heimild til að skjóta úrlausn úrskurðamefndar til áfrýjunamefndar. Kirkjuráð ákvað að nýta sér ekki þá heimild hvað varðar mál Grenjaðarstaðarprestakall. Máli Holtsprestakalls var skotið til áffýjunamefndar af báðum aðilum málsins. Kostnaður af rekstri þess máls fyrir báðum nefndunum varð umtalsverður svo og kostnaður sem greiddur var vegna lögffæðiaðstoðar við málsaðila. Biskup tók þá ákvörðun eftir að hafa farið vestur og fundað með sóknarbömum Holtsprestakalls að verða við ósk þeirra að málskostnaður málshefjenda yrði greiddur. Þegar reikningur lögffæðings gagnaðila barst síðar var ákveðið að sá reikningur yrði líka greiddur. Bókun kirkjuráðs var á þessa leið: "Þar sem hér er um fyrsta mál sem fer þessa leið innan kirkjunnar samþykkti kirkjuráð til að gæta jafnræðis að greiða þennan reikning. Kirkjuráð ályktar að hér sé um undantekningartilvik að ræða og málskostnaður verði ekki greiddur framvegis." Útgáfa laga og reglna kirkjunnar. Kirkjuráð gaf út í ársbyijun lagasafn kirkjunnar í nokkuð breyttri mynd. Ákveðið var að gefa aðallega út réttarheimildir sem varða kirkjuna beint, lög, reglugerðir og starfsreglur. Þá vom nokkrar fleiri heimildir teknar með. Heimildimar vom flokkaðar 23
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.