Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 85
Þá greiðir prestur ekki afgjald af þeim hluta prestsseturs / jörð er ekki nýtist honum og
sem stjóm sjóðsins hefur samþykkt að prestur skuli ekki hafa afnot af eða umráð yfir.
6. gr. orðist svo: Stjóm prestssetrasjóðs getur að ósk prests lækkað afgjald, fyrir
prestssetur í eftirfarandi tilvikum:
1. Þegar einungis hluti prestsseturs getur nýst presti, af ástæðum sem honum verður
ekki gefin sök á eða sem hann hefur ekki á valdi sínu að breyta.
2. Ef breytilegur rekstrarkostnaður prestsseturs er hærri en eðlilegt getur talist miðað
við sambærilegar fasteignir.
3. Vegna löglegra leyfa.
4. Ef sérstakt álag er á prestssetri sem leiðir til sérstakra skyldna eða umönnunar við
jörðina eða staðinn.
Endurgjald fellur þó ekki niður vegna sumarleyfa og gildir þar einu þótt um uppsafnað
sumarleyfi kunni að vera að ræða.
Stjóm prestssetrasjóðs er heimilt að mæla svo fýrir að ákvarðanir um þessi efni skuli
vera tímabundnar. Akvörðun á grundvelli 3. tl. gildir þó aldrei lengur en níu mánuði
nema alveg sérstaklega standi á. Þá er heimilt að fella ákvörðun úr gildi ef forsendur
hennar hafa breyst.
Ákvarðanir sjóðsstjómar samkvæmt 1. og 2. tl. falla sjálfkrafa úr gildi er prestur lætur
af embætti og afhendir prestssetur.
Sjóðsstjóm getur þó ákveðið að ákvarðanir um lækkun leigugjalds skuli haldast að
einhveiju eða öllu leyti áfram þótt prestaskipti verði.
Þegar svo hagar til, að leigugjald er lækkað á grundvelli 1. tl. þessarar greinar, skal að
jafnaði litið svo á, að prestur fari áfram með umráð þess hluta prestssetursins og beri
ábyrgð á honum eins og prestssetrinu að öðru leyti, en tekið skal tillit til þeirrar
ábyrgðar svo og annarra kvaða eftir því sem við á við ákvörðun um lækkun á leigu.
Stjórn úttekta
9. gr. sem áður var 9. og 12. gr. orðist svo: Prestssetur skal ávallt tekið út við skil
prests á því. Viðtakandi prestur á rétt á því að fá prestssetur tekið út í hendur sér ef 1.
mgr. á ekki við, svo sem ef prestssetur hefur ekki verið setið, eða ef um nýtt
prestssetur er að ræða.
Prestur á rétt á því að fá prestssetur tekið út, ef hann sýnir fram á nægilega hagsmuni
sína af því.
Stjóm sjóðsins ákveður hverju sinni hvort prestssetur skuli tekið út eftir endurbætur á
því.
Kostnaður við úttektir greiðist af prestssetrasjóði
Prófastur stýrir úttekt. Eíann gætir þess að boða fulltrúa frá stjóm prestssetrasjóðs með
hæfilegum fýrirvara, til að vera viðstaddan úttekt. Stjóm prestssetrasjóðs ákveður
hvort tilefni er til að mæta við úttektina og tilkynnir prófasti, ef ekki verður mætt. Ef
um minniháttar hagsmuni þykir vera að ræða, getur stjóm prestssetrasjóðs gert grein
fýrir sjónarmiðum sínum og óskum skriflega, áður en til úttektar kemur og sent
prófasti, er leggur það fýrir úttektarmenn.
Um hlutverk vígslubiskupa, prófasta og kirkjuþingsfulltrúa
10. gr. Núverandi 10. gr. fellur niður en í stað hennar komi ný grein sem orðist svo:
Viðkomandi vígslubiskup og prófastur hafa eftirlit með prestssetri og geta þeir ásamt
kirkjuþingsfulltrúum gert tillögur til stjómar prestssetrasjóðs um framkvæmdir á
prestssetri. Prófstur gætir sérstaklega að hverskonar réttindum sem tilheyra
prestssetrinu sbr. eldri ákvæði þar um.
81