Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 86
Um stjórn prestssetrasjóðs
11. gr. Núverandi 11. gr. fellur niður en í stað hennar komi núverandi 14. gr. svo
breytt: Stjóm prestssetrasjóðs fer með yfirstjóm prestssetra. Stjóm og
framkvæmdastjóri skulu á hverju reikningsári semja ársreikning. Jafnffamt skal samin
skýrsla stjómar fyrir liðið starfsár. Stjóm og ffamkvæmdastjóri skulu undirrita
ársreikninginn og leggja hann endurskoðaðan fyrir kirkjuþing til samþykktar.
Stjómin stýrir prestssetrasjóði og ákveður ráðstöfun inneigna á fymingarsjóðum
prestssetra, samkvæmt 2. gr. Stjómin ákveður hvemig rekstri sjóðsins er hagað
samkvæmt fjárhagsáætlun sem kirkjuþing samþykkir. Sérstakur ffamkvæmdastjóri fer
með daglega stjóm sjóðsins.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur hlutverk landsdrottins gagnvart prestum á
prestssetursjörðum samkvæmt ábúðarlögum og öðrum lögum og hlutverk leigusala
gagnvart presti í prestsbústað samkvæmt húsaleigulögum, með þeim afbrigðum sem
kunna að leiða af lögum um prestsseúar og reglum þessum, svo og sérstöðu prestssetra
að öðru leyti.
Um gæslu hagsmuna og fyrirsvar
12. gr. Núverandi 12. gr. fellur niður en í stað hennar komi núverandi 15. gr. svo
breytt: Stjóm prestssetrasjóðs hefur almennt fýrirsvar vegna prestssetra út á við svo
sem gagnvart stjómvöldum og Alþingi, og í dómsmálum þeirra vegna, og gætir
almennra og sérstakra hagsmuna prestssetra í samráði við hlutaðeigandi prest, prófast
og vígslubiskup, eins og við á.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur gætur á lagasetningu, lagabreytingum eða setningu eða
breytingu stjórnvaldsfyrirmæla á sviði kirkjumála.
Um heimildarskjöl
13. gr. Núverandi 13. gr. fellur niður en í stað hennar komi núverandi 16. gr. svo
breytt: Sjóðsstjóm gerir almennt byggingarbréf fyrir prestssetursjarðir og almennan
samning vegna prestsbústaða. Hið almenna byggingarbréf og hinn almenni samningur
ásamt reglum þessum skal liggja ffammi á biskupsstofu og hjá próföstum til sýnis
fyrir umsækjendur um prestsembætti þar sem prestssetur fylgir.
Á grundvelli þessara skjala skal gerður samningur milli prests og prestssetrasjóðs um
umráð og afnot prests af prestssetri.
Skal samningur þessi ávallt undirritaður áður en prestur fær prestssetrið afhent til
umráða. Jafnframt skal presti greint frá því hvar prestssetrið stendur í röð
framkvæmda hjá prestssetrasjóði hvað varðar viðhald og ffamkvæmdir einstakra
þátta.
Um ásýnd prestssetra o. fl.
14. gr, Núverandi 17. gr. breytist og orðist þannig: Stjóm prestssetrasjóðs ákveður
hvemig umbúnaður á prestssetri er, vegna ferðaþjónustu, fomminja, náttúruminja og
annars þess háttar, sem lýtur að ytri ásýnd prestssetranna, að því leyti sem lög,
samningar mæla ekki annan veg eða eðli málsins er með þeim hætti.
Um nýbyggingar og framkvæmdir prestssetrasjóðs á prestssetrum
15. gr. Núverandi 18. gr. og 19. gr. verða 15. gr. og orðast þannig: Stjóm
prestssetrasjóðs tekur ákvarðanir um nýbyggingar á prestssetmm að fenginn umsögn
biskupafundar og kirkjuráðs. Stjómin ákvarðar einnig um kaup og leigu húseigna þar
sem sóknarprestsembætti er án prestsseturs sem og ákvarðar hún hveijar framkvæmdir
til endurbóta á prestsssetrum skuli ráðast í og röð þeirra. Allar framkvæmdir stjómar
skulu taka mið af fjárhagsáætlun sem kirkjuþing samþykkir. Prestssetrasjóði er heimilt
82