Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 64
Starfsreglur um fræðslu fyrir leikmenn innan kirkjunnar
13. mál, flutt af kirkjuráði
1. gr. Á vegum þjóðkirkjunnar skal halda uppi fræðslustarfí fyrir leikmenn.
Fræðsla fyrir leikmenn samkvæmt starfsreglum þessum telst til fræðslu - og
boðunarstarfs kirkjunnar.
2. gr. Með fræðslustarfi kirkjunnar fyrir leikmenn skal
a) gefa almenningi kost á fræðslu um trú, sið og kirkju
b) veita starfsfólki og sóknamefhdum þjóðkirkjunnar fræðslu um starfshætti
kirkjunnar.
3. gr. Til að sinna verkefnum samkvæmt 1. og 2. gr. skal starfrækja Leikmannaskóla
kirkjunnar, sem heyrir undir kirkjuráð.
4. gr. Kirkjuráð getur samið við ríki, sveitarfélög, Háskóla íslands eða kirkjulega aðila
um þjónustu er Leikmannaskólinn veiti eða þiggi frá þeim, gegn endurgjaldi.
5. gr. Með yfirstjóm skólans fer þriggja manna stjóm, skipuð af kirkjuráði til fjögurra
ára, frá og með 1. júlí, árið eftir kjör til kirkjuráðs. Kirkjuráð skipar þijá varamemi frá
sama tíma. Kirkjuráð óskar eftir tilnefhingum frá Guðfræðideild Háskóla Islands og
Leikmannaráði. Kirkjuráð velur formann og varaformann. Stjómin ber ábyrgð á að
skólinn sinni skyldum sínum og að skólinn haldi sig innan fjárheimilda hverju simii.
6. gr. Stjómin gerir árlega starfs - og rekstraráætlun og leggur fyrir kirkjuráð til
samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Starfs - og rekstrarár skólans er
almanaksárið. Stjóm og verkefnisstjóri skulu á hverju reikningsári semja ársreikning.
Jafnffamt skal samin skýrsla stjómar fyrir liðið starfsár. Stjóm og verkeftiisstjóri
skulu undirrita ársreikninginn. Endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fyrir kirkjuráð.
7. gr. Stjómin, í samráði við kirkjuráð, ræður verkefnisstjóra skólans og setur honmn
erindisbréf. Verkefnisstjóri annast daglega yfirstjóm skólans og ræðm kennara í
samráði við stjóm. Heimilt er að semja við annan aðila um stjómunar - og
rekstrarþjónustu við skólann svo sem um verkefhisstjóm, fjárhald og bókhald, rekstm
húsnæðis, skrifstofu og upplýsingakerfis, annan almennan skrifstofurekstm og aðra
sambærilega þætti.
8. gr. Færa skal til bókar meginatriði þess sem ffarn fer á fundmn stjómar og
ákvarðanir hennar. Fundargerðir skulu sendar kirkjmáði reglulega.
9. gr. Leikmannaskólanum er heimilt að afla sértekna samkvæmt gjaldskrá er staðfest
skal af kirkjuráði.
10. gr. Starfsreglur þessar sem settar em með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjóm
og starfshætti þjóðkirkjunnar m. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar árið 2001.
Ákvæði til bráðabirgða: Kirkjmáð skal tilnefha stjóm skólans eins skjótt og kostm er
eftir að reglur þessar hafa öðlast gildi. Starfstími þeirrar stjómar er ffá 1. febrúar árið
2001 til loka júnímánaðar 2003. Endmskoða skal starfsreglm þessar innan tveggja
ára.
60