Gerðir kirkjuþings - 01.01.2000, Blaðsíða 6
32. Kirkjuþing 2000.
Kirkjuþing 2000 haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju í
Reykjavík dagana 16. til 25. október.
Sunnudagskvöldið 15. október 2000 kl. 20 var messa í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Karl Sigurbjömsson, biskup Islands, þjónaði fyrir altari ásamt dómkirkjupresti, sr. Jakobi
Agústi Hjálmarssyni sem predikaði. Sönghópur Biskupsstofu leiddi almennan söng.
Haukur Guðlaugsson, söngmálstjóri þjóðkirkjunnar lék á orgel.
Kirkjuþingvar sett mánudaginn 16. október kl 10.00.
Ávarp biskups íslands, Karls Sigurbjörnssonar
Kirkjumálaráðherra, frú Sólveig Pétursdóttir, forseti kirkjuþings, Jón Helgason, heiðruðu
kirkjuþingsfulltrúar. Verið velkomin til kirkjuþings hátíðarársins 2000. Eg þakka
messuna í gærkvöldi í Dómkirkjunni. prédikun séra Jakobs Ágústs Hjálmarssonar,
orgelleik Hauks Guðlaugssonar, söngmálastjóra, forsöng starfsfólks úr Kirkjuhúsinu og
alla góða þjónustu í hinum aldna helgidómi.
Ég þakka samveru og samskipti við kirkjuþingsmenn á Kristnihátíð, hátíðum víða um
land og umfram allt á hátíðinni á Þingvöllum í sumar. Sú hátíð er í mínum huga einstæð
reynsla. Birta, hlýja, gleði, það em orðin sem koma fram í hugann í tengslum við
hátíðina. Þar var ekki aðeins birtan og hlýjan sem skaparinn lét í té svo ríkulega þessa
fegurstu daga sumarsins, ógleymanlegt og yndislegt sem það var, heldur umfram allt
hlýjan og birtan af viðmóti fólksins sem var saman komið og gladdist og gladdi með
fagnandi nærvem sinni. Og þessu gleymi ég aldrei, þetta er óumræðilegt þakkarefni. Og
helgi þessarar hátíðar, samstilling í söng og helgri iðkun, samstarfið við presta og djákna
og fulltrúa sóknanna víðs vegar að af landinu sem lögðu líf og sál í helga þjónustu,
göfgandi og gefandi. Og söngur bamanna hrífandi og sú alúð og metnaður sem lagður var
í tónlist og alla umgjörð. Guð launi og blessi það allt. Guði sé lof fyrir þessa björtu og
hlýju gleðidaga á Þingvöllum.
Svo komu aðrir dagar. í kjölfarið hefur fylgt margt sem óneitanlega hefur varpað skugga
á þessa minningu. Umræða er af hinu góða og enginn er hafinn yfir gagnrýni. En neikvæð
umræða og árásir og jafnvel hatursskrif hafa á okkur dunið. Aðsókn að Þingvöllum var
ekki í samræmi við það sem ýtmstu væntingar gerðu ráð fyrir. Ýmsir vilja þar með segja
að þjóðin hafi afþakkað veisluboðið góða. Og alvarlegum og nærgöngulum spumingum
er beint til okkar um stöðu þjóðkirkjunnar í okkar samfélagi, um tengsl þjóðar og kirkju
og ríkis og kirkju. Og við þjónar og trúnaðarmenn þjóðkirkjunnar í landinu, við tökum
það vissulega til okkar og við leggjum okkur á hjarta og við íhugum, en við hröpum ekki
að ályktunum.
Við sem störfum á vettvangi kirkjunnar þekkjum það þegar boðað er til messu og færri
koma en við væntum. Það er gömul saga og ný. Mér er hugstæð sagan af séra Friðrik
þegar hann stofnaði KFUM fyrir 100 ámm rúmum. Hann boðaði fúnd og undirbjó allt
sem best hann gat. Og svo þegar til kom þá mætti enginn. Og þá sagði séra Friðrik þetta.
4