Gerðir kirkjuþings - 2005, Side 49
4. mál
Starfsskýrsla Prestssetrasjóðs
Flutt af Prestssetrasjóði
Frsm. Bjami Kr. Grímsson
Starfsskýrsla Prestssetrasjóðs 1. júní 2004 til 31. maí 2005.
Forsendur
Prestssetrasjóður var stofnaður með sérlögum um prestssetur nr. 137/1993. Hófst
starfsemi hans þann 1. jan. 1994. Samkvæmt 8. grein laganna tók stjóm Prestssetrasjóðs
þá við þeirri yfirstjóm prestssetra, sem verið hafði í höndum dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins áður. Þar segir:
Við gildistöku laga þessara tekur stjórn Prestssetrasjóðs við þeirri yfirstjórn
prestssetra sem verið hefur í höndum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, svo
og réttindum og skyldum sem þeim fylgja.
Prestssetrasjóður er því sjálfstætt stjómvald sem starfar án afskiptis ráðuneytis sbr. ofan
greind lög. Einu takmarkanir sem gerðar em á þessari yfirstjóm stjómar sjóðsins lúta að
kaupum og sölum á prestssetmm, svo sem mælt er fyrir um í 4. gr. þessara sérlaga um
sjóðinn.
I 5. gr. laganna segir:
Prestum ber að gjalda Prestssetrasjóði leigufyrir prestssetur. Sjóðstjórn
ákveður leigukjör, þar með talið leigugjald, og gerir leigusamninga við
presta um prestssetur. Akvœði húsaleigulaga og ábúðarlaga taka til
réttarsambands aðila eftir því sem við getur átt.
Stjóm Prestssetrasjóðs hefúr hlutverk landsdrottins gagnvart prestum á
prestssetursjörðum samkvæmt ábúðarlögum og öðmm lögum og hlutverk leigusala
gagnvart presti í prestsbústað samkvæmt húsaleigulögum, með þeim afbrigðum sem
kunna að leiða af lögum um prestssetur og starfsreglum sjóðsins.
Kirkjuþing er æðsta vald í málefnum sjóðsins og getur sett sjóðstjóm starfsreglur og
gert ályktanir um hvaðeina er lýtur að stjóm og starfiækslu hans, en um
Prestssetrasjóð gilda starffeglur nr. 826/2000 með síðari breytingum.
Stjórn og starfsmenn
A Kirkjuþingi 2004 var Guðmunda Kristjánsdóttir kosin í stjóm sjóðsins í stað sr.
Lám G. Oddsdóttur. Stjóm sjóðsins skipa nú, Bjami Kr. Grímsson,
viðskiptaffæðingur, er formaður sjóðsins en aðrir stjómarmenn em Láms Ægir
Guðmundsson, viðskiptaffæðingur, og Guðmunda Kristjánsdóttir, löggiltur
læknaritari.Varamenn em sr. Guðjón Skarphéðinsson, sóknarprestur, Kristrún
Heimisdóttir, lögfræðingur, og Ólafur Eggertsson, bóndi.
Stjómin hefúr haldið 11 stjómarfundi á starfsárinu auk fjölda vinnufunda einstakra
stjómarmanna með starfsmönnum sjóðsins.
47