Gerðir kirkjuþings - 2005, Qupperneq 14
Ég tel eðlilegt, að innan kirkjunnar sé hugað að lögunum um stöðu, stjóm og starfshætti
þjóðkirkjunnar. Margt bendir til þess, að nauðsynlegt sé að fara yfir lögin að nýju og
meta, hvort einstök ákvæði hafa gefið þá raun, sem að var stefiit. Ég mun þó ekki hafa
ftumkvæði í þessu máli nema fram komi ósk um það frá kirkjuþingi eða kirkjuráði.
í öðm lagi nefhi ég umræður um sóknargjöld og einnig rétt kristinna safhaða utan
þjóðkirkjunnar til tekjuöflunar.
Ég ætla ekki að ræða fortíðina varðandi sóknargjöldin. Það er miklu nær að líta fram á
veginn. Ef kirkjuþing eða kirkjuráð telur ástæðu til þess að endurskoða reglur um
sóknargjöld, er ég til þess búinn að beita mér fyrir því, að fulltrúar dóms- og
kirkjumálaráðuneytis og íjármálaráðuneytis komi að því verki með fulltrúum kirkjunnar
og safiiaða utan þjóðkirkjunnar.
Reynslan af nýju reiknilíkani vegna kirkjugarðsgjalds er að því er ég best veit góð.
Gjaldalíkan vegna sóknargjalda kann að vera framtíðarleið til að ná sátt í þessu máli.
í sömu andrá og ég ræði ég þetta vil ég minna á óánægju kristinna safhaða utan
þjóðkirkjunnar vegna skorts á fjárhagslegum stuðningi úr sjóðum, sem ætlað er að
styðja við kristilegt starf. Ef unnt væri að finna leið til að koma til móts við þessa
gagnrýni, þegar rætt er um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju, yrði ávmmngunnn af
því meiri en §árhagslegur.
I þriðja lagi vil ég minna á, að á undanfomum ámm hefur með breytingum á lögum og
reglugerðum um kirkjugarða verið unnið að góðum umbótum á þessu sviði.
Nú síðast setti ég reglugerð um kistur, duftker, greffrun og líkbrennslu, sem vakti
nokkrar umræður síðsumar. Fyrir gildistöku reglugerðarinnar var leyst úr ágreiningi
vegna hennar.
I ljósi þess, að nú er liðinn áratugur ffá því að reglur um útfararþjónustur vora settar í
fýrsta sinn hér á landi, þótti mér tilefhi til að huga að því, hver reynslan af þeim hefúr
verið og hvort nauðsynlegt væri að breyta þeim á einn eða annan hátt. Jafhffamt vil ég
beita mér fýrir því, að settar séu siðareglur um þessa viðkvæmu starfsemi og unnt sé að
fylgja því eftir, að þeim sé framfýlgt.
Hinn 29. júní skipaði ég þriggja manna nefhd undir formennsku Þórsteins Ragnarssonar
til að fara yfir lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu og endurskoða reglugerð um
útfararþjónusm meðal axrnars með hliðsjón af nauðsyn siðareglna, en nefhdin á einnig
að semja þær. Þá óskaði ég einnig eftir því, að nefhdin semdi tillögur um sameiginlegan
vettvang fýrir útfararstofur á íslandi.
Ég bind góðar vonir við störf nefhdarinnar, en hún mun skila tillögum sínum í næsta
mánuði.
12