Gerðir kirkjuþings - 2005, Blaðsíða 86
þingið kýs til kjörstjómar.
Kjörtími kjörstjómar er frá 1. desember það ár sem þriðja Kirkjuþing er haldið.
Talning atkvæða og útgáfa kjörbréfa
10. gr.
Kjörstjóm telur atkvæði eigi síðar en að viku liðinni frá þeim skilafresti sem hún setur
og úrskurðar þau.
Sá er kjörinn aðalmaður, sem flest fær atkvæði sem aðalmaður. Sá er kjörinn 1.
varamaður sem flest fær atkvæði sem varamaður að viðbættum þeim atkvæðum sem
hann fær sem aðalmaður, sá 2. varamaður sem næstflest fær atkvæðin talin með sama
hætti og sá 3. varamaður þar sem það á við sem fær atkvæði talin með sama hætti.
Hljóti tveir eða fleiri jöfh atkvæði ræður hlutkesti og gildir það einnig um röð
varamanna ef því er að skipta.
Kjörstjóm skal birta nöfn þeirra er kosningu hlutu, strax að lokinni talningu.
Kjörstjóm gefur út kjörbréf til þingmanna, aðalmanna og varamanna og skal röð
varamanna greind sérstaklega.
Gerðabók kjörstjómar
11. gr.
Kjörstjóm færir gerðabók þar sem skrá skal meginatriði funda, kæmmál og úrlausnir
þeirra, svo og úrslit kosninga.
Varamenn
12. gr.
Ef kirkjuþingsmaður andast á kjörtímabilinu, flytur burt úr kjördæminu eða forfallast
varanlega eða tímabundið, tekur varamaður hans sæti í þeirri röð sem hann er til
kjörinn. Hafi hlutaðeigandi kirkjuþingsmaður gegnt embætti forseta kirkjuþings, skal
kirkjuþing kjósa til embættisins að nýju.
Varamaður tekur sæti aðalmanns í föstum þingnefhdum og þarf ekki að kjósa að nýju
um sæti aðalmannsins.
Kæmr vegna kirkjuþingskosninga
13. gr.
Rétt til að kæra eiga þeir einir sem hafa kosningarrétt við kirkjuþingskjör. Kærur vegna
kirkjuþingskosninga skulu hafa borist kjörstjóm eigi síðar en 4 vikum eftir að atkvæði
em talin sbr. 1. mgr. 12. gr. Leggur hún þær, ásamt athugasemdum sínum, fyrir
yfirkjörstjóm Þjóðkirkjunnar sbr. 16. gr. til úrskurðar.
Yfirkjörstjóm Þjóðkirkjunnar
14. gr.
Yfirkjörstjóm þjóðkirkjunnar fer með endanlegt úrskurðarvald í ágreiningsmálum
vegna kirkjuþingskosninga. Hún er skipuð þremur mönnum og þremur til vara, til
fjögurra ára í senn. Skal einn þeirra vera löglærður sem og varamaður hans. Formaður
boðar fundi í yfirkjörstjóm.
Aðsetur yfirkjörstjómar skal vera á biskupsstofu. Biskupsstofa sér nefndinni fýrir
aðstöðu og þjónustu.
84