Gerðir kirkjuþings - 2005, Side 63
6. mál Skýrsla kirkjuþingsnefndar til Kirkjuþings 2005, um skipan
prófastsdæma og kirkjuþingskosningar
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Kristján Bjömsson
í skýrslu þessari er kirkjuþingi 2005 gerð grein fyrir störfum kirkjuþingsnefndar um
skipan prófastsdæma og um kirkjuþingskosningar. Nefndin var kosin á kirkjuþingi
2004. Var það að tillögu löggjafamefndar, sem hafði haft til umfjöllunar tillögu
biskupafundar um breytta skipan prófastsdæma í landinu (11. mál), en auk þess kom
fram á þinginu ítarleg tillaga starfshóps presta og leikmanna í Reykjavík, sem gerði ráð
fyrir 10 prófastsdæmum en ekki 16 eins og em í dag. Gerði sú tillaga einnig ráð fyrir
skiptingu prófastadæma í tilgreind samstarfssvæði. Áður höfðu og komið ffarn tillögur
á kirkjuþingi 2002 um breytingar á prófastsdæmunum á SV-hominu, sem gerðu ráð
fyrir fjórum prófastsdæmum þar sem nú em þijú, Reykjavíkurprófastsdæmin tvö og
Kjalamessprófastsdæmi. Á kirkjuþingi hefur verið talið nauðsynlegt að taka starfsreglur
um kirkjuþing til endurskoðunar og kom það meðal annars ffam í 8. máli, sem lagt var
fyrir kirkjuþing 2004. Ákvað kirkjuþing að þessi tvö mál, um skipan prófastsdæma og
um kirkjuþingskosningar, þyrffu nánari skoðunar við og skipaði þá nefnd, sem áður er
getið, til að vinna að báðum þessum málaflokkum og fylgja eftir tillögum, sem starf
nefndarinnar leiddi til. Einnig var mælt fyrir um samráð við biskupafund og kirkjuráð.
Kirkjuþing kaus fimm manns til að vinna þessa nefndarvinnu. Það em sr. Kristján
Bjömsson, K. Hulda Guðmundsdóttir, sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, Láms Ægir
Guðmundsson og sr. Lára G. Oddsdóttir. Auk þess hefur Jóhann E. Bjömsson starfað
með nefhdinni til að virkja samráð við kirkjuráð. Nefndin hefur og notið starfskrafta
Guðmundar Þórs Guðmundssonar, ffamkvæmdarstjóra kirkjuráðs. Náið samráð hefur
verið hafl við biskupafund og hafa fulltrúar nefndarinnar kynnt tillögumar bæði fyrir
biskupunum og á kirkjuráðsfundum, sem sameiginlegir hafa verið með forsætisnefnd
kirkjuþings. Nefiidin hefur fundað með stjóm Prófastafélags íslands og formanni
Prestafélags Islands. Hugmyndir nefndarinnar vom kynntar á prófastafundi í mars 2005
á því stigi sem þær vom þá. Þá var flutt ítarleg greinargerð á Prestastefnu íslands 2005.
Haldnir vom 12 nefiidarfundir á þessum 12 mánuðum, sem nefiidin starfaði milli þinga.
Kynning á héraðsfundum
Nefiidin vann út ffá áðumefhdum tillögum, sem biskupafundur lagði fyrir kirkjuþing
2004. Það var affáðið í samráði við biskupafund í janúar 2005, eftir að hugmyndir
nefiidarinnar vom famar að skýrast, að nefndarmenn önnuðust kynningu á
héraðsfundum landsins. í þessari skýrslu er ekki ætlunin að fara yfir þá kynningu sem
slíka, en hún fylgir hér með sem fýlgiskjal. Em það annars vegar efiiispunktar í
kynningarformi og hins vegar tafla yfir skiptingu landsins í 10 prófastsdæmi.
61