Gerðir kirkjuþings - 2005, Blaðsíða 50
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Höskuldur Sveinsson, arkitekt. Framkvæmdastjóri
Prestssetrasjóðs hefur það hlutverk með höndum að sinna allri daglegri stjómun og
rekstri sjóðsins. Hann hefur yfirumsjón með byggingartæknilegri umsýslu sjóðsins,
undirbýr fundi stjómar, sinnir stjómsýslu sjóðsins og öðrum verkefnum sem honum
em falin af stjóm hans hveiju sinni.
Kristín Mjöll Kristinsdóttir, innanhússarkitekt, hefur áfram gengt starfi eftirlitsmanns
prestssetra ásamt því að annast eftirlit reikninga og hluta af bókhaldsvinnu fjoir
sjóðinn. Frá 1. janúar 2003 hefur Kristín verið í 80% starfi fýrir Prestssetrasjóð, en í
20% starfi fyrir Kirkjumálasjóð og Kristnisjóð.
Prestssetrasjóður er með samning við Biskupsstofu um skjalavörslu, bókhald og
íjárvörslu, svo og aðstöðu fyrir skrifstofu hans á 4. hæð Kirkjuhússins að Laugavegi.
Stjóm og starfsmenn sjóðsins hafa sem fýrr haft með höndum fjölþætt en hefðbundin
verkefni.
Fjárhagur
í byrjun ársins 2003 var yfirdráttarskuldskuld sjóðsins hjá SPRON breytt í langtímalán.
A árinu 2004 hefur verið haldið áffam að semja um lækkun vaxta á öllum lánum
sjóðsins hjá bönkum og sparisjóðum. Vaxtagjöld og verðbætur sem sjóðurinn greiðir
hafa því lækkað verulega milli ára og ætla má að svo verði áfram haldist skuldastaða
hans óbreytt.
Vextir á öllum lánum sjóðsins hafa verið lækkaðir til samræmis við það sem lægst
gerist á sambærilegum húsnæðislánum í dag. Hefor þessi vinna skilað sér í lækkun á
íjármagnsgjöldum milli áranna 2003 og 2004 sem nemur tæpum 2,6 millj. kr. á árinu og
gert er ráð fyrir áffamhaldandi lækkun á þeim.
Langtímaskuldir Prestssetrasjóðs eru nú rúmar 138 millj. kr. og hafa þær lækkað um 2
millj. kr. á árinu, en engin ný lán voru tekin á árinu. Bent skal á að til þessara skulda
hefur ekki aðeins verið stofnað af stjóm sjóðsins heldur er hér einnig um yfirteknar
skuldir, sem umráðamenn prestssetra hafa tekið t.d. vegna búskapar á prestsetursjörðum
á sínum tíma. Skammtímaskuldir sjóðsins hafa lækkað verulega á árinu.
I lok ársins 2004 var samanlagt brunabótamat fasteigna í eigu/umsjón Prestssetrasjóðs
um 2.332 millj. kr. Sé skuldastaða sjóðsins borin saman við brunabótamat eigna hans
nema veðskuldir hans um 5,9% af samanlögðu brunabótamati. Til fróðleiks má geta
þess að söluandvirði margra prestssetra er margfalt bmnbótamat þeirra fasteigna sem
þar eru. Telja verður því, að þrátt fyrir að skuldir sjóðsins séu töluverðar, þá sé
skuldastaða hans góð miðað við hinar miklu eignir hans. Skammtímaskuldir sjóðsins
eru nú 13,8 millj. kr. og hafa þær lækkað verulega á árinu 2004.
Arsreikningur 2004 með áritun Ríkisendurskoðunar sýnir tekjuafgang að upphæð 23
millj. kr. og óráðstafað eigið fé er rúmar 140 millj. kr. Munar þar mestu um að
hefðbundnar tekjur sjóðsins hafa verið lítið eitt meiri en gert var ráð fyrir í
íjárhagsáætlun og bókfærð er á árinu sala á prestssetrinu að Hólum í Hjaltadal upp á 15
millj. kr., sem skráð var sem útistandandi skuld í ársreikningi á árinu 2003, þar sem
ekki var búið að ganga endanlega ffá þeirri sölu til uppgjörs þá.
48