Gerðir kirkjuþings - 2005, Blaðsíða 35
skipulagsskrá Hjálparstarfsins ekki sitja lengur í fulltrúaráðinu. Samþykkt var að
tilnefha sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur, sóknarprest í Háteigsprestakalli, sem varamann
til tveggja ára.
- Stjóm Skálholtsútgáfunnar
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjálfseignarstofhunina skipar Kirkjuráð einn fulltrúa á
ári til þriggja ára í senn. Kirkjuráð skipar þijá fulltrúa samkvæmt þessu, einn á ári.
Kirkjuráð skipaði frú Ebbu Sigurðardóttur áfram sem einn af þremur fulltrúum
Kirkjuráðs í stjóm Skálholtsútgáfunnar til næstu þriggja ára.
- Fagráð um meðferð kynferðisbrota
Ákveðið var að skipa Huldu Björgvinsdóttur, lögffæðing, sem aðalmann í fagráð um
meðferð kynferðisbrota í stað Elsu Þorkelsdóttur lögfræðings, sem hefur sagt af sér
vegna brottflutnings af landinu. Kolbrún Linda ísleifsdóttir, lögfræðingur og varamaður
Elsu óskaði eftir að víkja úr fagráðinu vegna anna og skipaði Kirkjuráð sem varamann
hennar Höllu Bachmann, lögffæðing.
- Stjóm Minningarkapellu Jóns Steingrímssonar
Kirkjuráð samþykkti að skipa Jóhannes Ingibjartsson, byggingatæknifræðing, formann
bygginga- og listaneíhdar og starfsmann Jöfhunarsjóðs sókna, til að starfa með stjóm
Minningarkapellu Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjarklaustri.
Endurskoðun verkferla við úthlutun
Verkferlar við úthlutun úr þeim sjóðum sem Kirkjuráð stýrir hafa verið til skoðunar á
árinu og hafa þeir verið einfaldaðir nokkuð. Þá hefur verið ákveðið að skilafrestur
umsókna í sjóði verði 15. júní eins og fyrr segir. Fjárhagsáætlanir nefhda, sviða og
stofnana skulu einnig hafa borist fyrir þann tíma. Fyrri umræða Kirkjuráðs um
fjárhagsáætlanir fari ffam í septembermánuði ár hvert og seinni í nóvember. Gefst með
þessum breytingum meiri tími til gagnaöflunar og athugunar umsókna en verið hefur.
Er vonast til þess að þetta leiði til vandaðri málsmeðferðar og auðveldi úthlutanir og
gerð íjárhagsáætlana.
Vaxtakjör kirkjunnar
Á síðasta ári vom viðskipti við SPRON endurskoðuð m.a. vegna lána sem
Jöfnunarsjóður sókna veitir ábyrgð fyrir. í ljósi breyttra vaxtakjara sem í boði eru á
markaði em þessi mál áfram til athugunar. SPRON samþykkti að vextir af lánum
Kirkjumálasjóðs skyldu vera þeir sömu og af lánum með ábyrgð ábyrgðardeildar
Jöfnunarsjóðs sókna og telst það mjög hagstætt.
Vaxtalækkun á lánum sókna hjá Kirkjubyggingasjóði
Kirkjuráð samþykkti að lækka vexti á útistandandi lánum sókna hjá
Kirkjubyggingarsjóði til samræmis við almenn vaxtakjör sem ábyrgðardeild
Jöfriunarsjóðs nýtur og hefur sú breyting þegar tekið gildi.
33