Gerðir kirkjuþings - 2005, Qupperneq 52
Meiri háttar viðhald prestssetra
Stærsti gjaldaþáttur Prestssetrasjóðs á hveiju ári eru framkvæmdir við viðhald og
endumýjun prestssetra og útihúsa, þar sem það á við, ásamt rekstri þeirra. Nemur það
sem svarar tæpum 60% af útgjöldum sjóðsins á ári hveiju. Sé fjármagnskostnaður og
afborganir af eldri lánum vegna ffamkvæmda tekin með þá nema útgjöld sjóðsins vegna
þessara liða samtals um 71%. Alls em prestssetur rúmlega 80 talsins og er því að mörgu
að hyggja þegar hugað er að viðhaldi þeirra.
A árinu 2004 námu útgjöld til viðhalds lægri upphæð en áætlað var á árinu og lægra en
árið 2003, sem var raunar óvenju mikið framkvæmdaár og því ekki fyllilega
sambærilegt. Geta má þess að Prestssetrasjóður hefur ekki farið varhluta af þeirri
ffamkvæmdaþenslu sem er í þjóðfélaginu nú og hefur oft verið erfitt að fá iðnaðarmenn
til viðhalds- og byggingarstarfa fyrir sjóðinn. Er það m.a. ein af ástæðum þess að
útgjöld vegna viðhalds- og byggingarffamkvæmda hafa verið minni en ráð var fyrir gert
á árinu. Þau verkefhi bíða til næsta árs.
Auk þess hefur þegar mikið verið unnið að viðhaldi á prestsetmm undanfarin ár og því
era mörg þeirra, sem betur fer, í ágætu ástandi. Ástand prestssetra er enn mjög misjafht
og árlega berast miklu fleiri óskir frá prestum um endurbætur heldur en fjármagn
sjóðsins í raun leyfir og því verður enn að forgangsraða viðhaldsverkefnum og
byggingarframkvæmdum.
I viðhaldi prestssetra hefur það haft algjöran forgang, sem áður, að fara í þær viðgerðir
á skemmdum sem geta valdið varanlegu eða meiriháttar tjóni á prestssetrinu. Viðgerðir
á útveggjum, gluggum og þaki ásamt lagnakerfi hafa vegið þar þyngst. Einnig hefur
eðlilegu viðhaldi innanhúss verið sinnt eftir því sem efni og aðstæður hafa leyft.
Heildarkostnaður vegna viðhalds á árinu 2004 nam rúmum 42 millj. kr. Á starfsárinu
hefur, eins og undanfarin ár, verið haldið áfram þeirri stefnu sem var mörkuð í
viðhaldsmálum prestssetra.
Stöðugt er lögð áhersla á að stjóm sjóðsins ásamt ffamkvæmdastjóra hafi gott eftirlit
með framkvæmdum, þannig að verkáætlanir standist og umráðamenn prestssetra geti
ekki stofnað til ósamþykktra útgjalda. Starfsmenn sjóðsins leggja fyrir hvem
stjómarfund skýrslur varðandi viðhaldsþörf og þau verkeöii sem em í vinnslu hveiju
sinni.
Helstu viðhaldsverkefni árið 2004
Reykholt. Endumýjun allra vatnslagna og ofna, grafið frá húsi og settar nýjar drenlagnir
kringum íbúðarhús, endumýjun gólfefna og baðherbergi endumýjað.
Hof. Hlaðinn veggur við bílaplan ásamt e&i. íbúðarhús málað að innan með öðm
viðhaldi vegna prestsskipta.
Reynivellir. Frágangur á lóð ásamt hellulögn við innganga.
Skútustaðir. Eldhús allt endumýjað með innréttingu og gólfefiii, ásamt lagfæringum á
rafmagnslögnum og vatnslögnum.
Syðra-Laugaland. Nýtt þak og málun á gluggum, lagfæringar á gólfum í kjallara.
Vík í Mýrdal. Heildar endumýjun á vatnslögnum í kjallara.
50