Gerðir kirkjuþings - 2005, Síða 34
Þjóðkirkjunnar, féll Leikmannaskóli Þjóðkirkjunnar sem sjálfstæð stofoun niður og
leikmannafræðslan færðist undir fræðslusvið Biskupsstofu. Mikilvægt er að þeirri
starfsemi sem Leikmannaskólinn sem stofhun sinnti, er haldið áfram, enda fyrst og
fremst um formbreytingu að ræða. Má því skilgreina Leikmannaskólann sem verkefiii
fræðslusviðs. Eins og fram kemur í Arbók kirkjunnar var starfsemi skólans blómleg og
mörg námskeið haldin á vegum hans.
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
A síðasta Kirkjuþingi var samþykkt tónlistarstefna kirkjunnar eins og fyrr greinir.
Samkvæmt henni hefur verið ráðinn söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og var Hörður
Askelsson organisti ráðinn til starfans í hálfu starfi. Starfið heyrir undir Biskup íslands.
Tónskólinn hefur sinnt ákveðnum skyldum vegna söngmála en með ráðningu
söngmálastjórans verða verkaskipti skýrð.
Stjóm Tónskólans kom á fund Kirkjuráðs til að ræða málefni skólans og skýra frá
ýmsum atriðum varðandi starfsemi hans. Skólinn menntar organista en annast jafhframt
tiltekna kennslu fýrir starfandi organista og presta. Skólagjöld hafa verið hækkuð,
námskrá hefur verið endurskoðuð og kynning á starfsemi skólans út á við hefur verið
aukin, m.a. með útgáfu bæklings og heimasíðu. Rætt hefur verið við aðrar
menntastofhanir með hugsanlegt samstarf í huga. Unnið hefur verið að því að bæta
aðgengi þeirra nema sem búa utan Reykjavíkursvæðisins og auka framboð kennslu með
meistaranámskeiðum í orgelleik. Þá hefur verið unnið að samþættingu náms og
starfsþjálfun prestsefha og orgelnema í messuflutningi. Nemendur skólans eru tæplega
20, en stefnt er að því að útskrifa 2-3 kantora á ári. Skólinn hefur æ meir sinnt
menntun organista sem þegar eru komnir í starf. Það er vandi að nemendur skólans fá
ekki námslán og eru því önnum kafrdr við launuð störf eða hætta oft í námi af þeim
sökum. Þess vegna útskrifast færri ár hvert en gert hafði verið ráð fýrir við endurskoðun
starfseminnar fýrir nokkrum árum. Launakostnaður hefúr aukist og því er fjárhagur
skólans þröngur. Ljóst er að fara þarf yfir fjármál skólans og söngmálastjóra með
hliðsjón af verkaskiptingu þessara aðila og verður það gert í tengslum við gerð
fjárhagsáætlana.
Strandarkirkja
Strandarkirkjunefhd hefur í umboði Kirkjuráðs yfirumsjón með málefhum
Strandarkirkju og kirkjugarðsins ásamt sóknamefhd. Um rekstur og framkvæmdir í
Strandarkirkju vísast til greinargerðar í Árbók kirkjunnar.
VI. Önnur mál
Skipan í nefndir á árinu.
Kirkjuráð skipaði í nokkur trúnaðarstörf á tímabilinu:
- Fulltrúaráð Hjálparstarfs kirkjunnar
Kirkjuráð samþykkti að tilnefha sem aðalmenn til næstu til tveggja ára í fúlltrúaráð
Hjálparstarfs kirkjunnar, Sigríði Lister, hjúkrunarffæðingur, Reykjavík og Hrafnhildi
Sigurðardóttur, útibússtjóra hjá Landsbanka íslands, Reykjavík. Hrafnhildur kemur í
stað sr. Gísla Jónassonar, prófasts, sem hefur setið í sex ár og má samkvæmt
32