Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2010, Síða 58
58
ÚlfhilDuR DaGsDóttiR
vötnum.42 Líkt og í Frjáls og villtur er formúlan nýtt til hins ýtrasta með
tilheyrandi tilvísunum til þekktra bandarískra hrylla. Hópur ungmenna
ætlar að eyða páskafríinu í fjallakofa lengst uppi í snjóþungum fjöllum,
langt utan þjónustusvæðis farsíma. Í hópnum er kvikmyndanörd sem
bendir, eðlilega, á að margar hrollvekjur segi einmitt frá hópi feigra ung-
menna sem sé símasambandslaus og að öllu leyti einangraður frá umheim-
inum og nefnir fyrrnefndan Föstudag þrettánda, en einnig Dauða illsku
(1981, Sam Raimi, Evil Dead, auk framhalda). Ein stúlkan bendir líka á
Fyrsta apríl (1986, Fred Walton, April Fool’s Day), en sú mynd gerir út á
spurninguna um hvort morðin séu raunveruleg eða bara aprílgabb. Þannig
er áhorfanda strax sagt hverskonar fyrirbæri er á leiðinni, blanda af slátri
og zombíu, auk þess sem efa er sáð um hvort þetta muni reynast alvöru
slátur eða bara gabb. Það er þó lítið um gabb, en þeim mun meira um frek-
ari tilvísanir; ungmennin leika leiki sem bjóða upp á kynferðislega spennu
og þeim bregður ógurlega þegar ókunnur maður bankar upp á. Hann segir
þeim sögu af átökum milli nasista og íbúa svæðisins á lokaárum síðari
heimsstyrjaldar, en þau enduðu með því að nasistahópur flýði í fjöllin og
fannst aldrei og voru mennirnir taldir af. Æ síðan hefur eitthvað illt verið
þarna á sveimi og því sé þeim best að fara að öllu með gát. Unga fólkið
hlær að sögunni og karlinn hneykslast á þessum ofdekruðu ungmennum
sem viti ekkert og beri enga virðingu fyrir neinu. Hann fer og er að sjálf-
sögðu slægður í tjaldi sínu. Næst til að deyja eru kvikmyndanördinn og
vinstúlka hans, þau hafa samfarir á kamrinum og þegar hann fer inn verður
hún eftir til að sinna öðrum erindum og er strax dregin ofan í skítaþróna.
Hún nær þó að skríða aftur upp úr, öll útötuð og með innyflin úti, bara til
að vera endanlega drepin þegar hún staulast út í snjóinn og æpir á hjálp.
Þessi sena er sérlega grótesk með blöndu sinni af saur og kynlífi, auk þess
sem hún býður upp á tvær klassískar tilvísanir til formúlunnar. Í fyrsta lagi
er hefð fyrir því að kynlíf jafngildi dauðadómi í unglingahrollvekjum.
Þetta er oft túlkað sem teikn um að hrollvekjan sé í eðli sínu íhaldsamt
42 Undantekningarnar á þessari annars góðu zombíu-mynda reglu eru bresku mynd-
irnar 28 dögum síðar (2002, Danny Boyle, 28 Days Later) og 28 vikum síðar (2007,
Juan Carlos Fresnadillo, 28 Weeks Later), sem gerðu út á að snúa á formúluna.
Þrátt fyrir að Upptakan og Dauður snjór endi illa þá nýta báðar myndirnar sér
annað nýnæmi 28-myndanna, en það var að láta zombíurnar vera hraðar og hlaup-
andi, en fram að því hafði helsta vopn lifenda gegn lifandi dauðum verið það að
hinir dauðu fóru afar hægt yfir.