Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2010, Side 161
161
urnar klingdu hátt og greinilega yfir þökum og hvelfingum, var sumarið
þrungið fágætri fegurð aldagamals æskuljóma.“40
oxford er elsti háskóli hins enskumælandi heims og einn af máttar-
stólpum menntunar í Englandi. Hann er einnig sú menntastofnun sem
einna helst skilgreinir Breta út á við sem menningarþjóð ásamt keppi-
nautnum Cambridge. Charles syrgir liðinn tíma, æsku sína og ástina en
umhverfi fortíðarinnar er elsti og virðulegasti háskólabær Bretlands,
þekktur fyrir fágæta byggingarlist og voldugt ættarsetur; en hvort um sig á
þátt í að skilgreina rætur Breta og skapa þeim sjálfsmynd. Í fortíðarþránni
sem finna má í þáttaröðinni má þannig sjá söknuð Breta eftir tíma þegar
bresk menning hóf þá á stall í samfélagi þjóðanna.
Áhersla þáttaraðarinnar á byggingarlist í oxford tengist áhuga Charles
á arkitektúr en hann er helsti áhorfandi sögunnar. Fagrar byggingarnar frá
heimsveldistímanum eru órjúfanlegur hluti af eftirsóknarverðu hefðarlíf-
inu og tengjast einnig áhuga hans á list. Líkt og Elísabet sem dáist að
umhverfinu og voldugu setrinu þegar hún sækir Darcy heim, rannsakar
Charles byggingarlist Brideshead. Hann ráfar um herbergin, skoðar súlur,
málverk og veröndina af ákefð. Þannig má segja að hann, líkt og Elísabet,
sé arfleifðarneytandi og nálgist glæsileikann rétt eins og ferðamaður sem
hefur brennandi áhuga á list. Um leið og íburðurinn tælir áhorfandann,
tælir hann aðalhetjuna einnig.
Í eftirfarandi samræðum má glögglega sjá hlutverk Charles sem arf-
leifðarneytanda. Þegar hann dregur upp gosbrunninn veltir hann því fyrir
sér hvort hvolfþakið sé einnig eftir Inigo Jones: „Það lítur út fyrir að vera
gert síðar“, segir hann. Sebastian (Anthony Andrews) svarar: „Ó, Charles,
ekki vera svona mikill túristi. Skiptir máli hvenær það var byggt, ef það er
fallegt?“ Charles segir: „Mig langar til þess að vita svona lagað.“41
Charles segir það jafngilda listnámi að búa innan þessara veggja og lýsir
herbergjunum nákvæmlega. Hann ráfar frá Soanesque-bókasafninu,42 að
40 „In her spacious and quiet streets men walked and spoke as they had done in
Newman’s day; […] the rare glory of her summer days – such as that day – when
the chestnut was in flower and the bells rang out high and clear over her gables
and cupolas, exhaled the soft airs of centuries of youth“ (bls. 23). John Henry
Newman (1801–1890) kardináli var þekktur fræðimaður og prestur í oxford-
háskóla. Hann snerist til kaþólskrar trúar 1845 og varð að yfirgefa oxford.
41 „,Is the dome by Inigo Jones, too? It looks later.‘ ,o, Charles, don’t be such a tour-
ist. What does it matter when it was built, if it’s pretty?‘ ,It’s the sort of thing I like
to know‘“ (bls. 78). Inigo Jones var enskur endurreisnararkítekt (1573–1652).
42 Sir John Soanesque var enskur arkítekt (1773–1837). Hann var m.a. fulltrúi ný-
TIL PEMBERLEY VAR FöRINNI HEITIð