Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2010, Síða 163
163
ekki sást ský á himni, þegar síkin voru þakin gulhvítum kvistum
og loftið þungt af ilmi sumarsins; þetta var dagur sérstakrar
dýrðar, og þótt ég hafi snúið þangað margsinnis aftur varð mér
nú hugsað til minnar fyrstu heimsóknar í þessari – hinni síð-
ustu.46
Fortíðin sem leitar á lífsleiðan hermanninn Charles er böðuð draum-
kenndri birtu. Hlutverk Charles í sögunni er að horfa og í þessu ljósi sjáum
við Sebastian í fyrsta skipti. Sebastian birtist fyrst í oxford, rammaður inn
í bogagöng, baðaður gylltu sólarljósi, með ljóst fíngert hár og með útlit
sem minnir á engil. Sebastian er tákn fyrir þá tilveru sem dregin er fram í
fyrri hluta þáttanna, hann er fulltrúi æsku og töfra. Honum hefur verið lýst
þannig að hann sé of hreinn fyrir þennan heim, of fíngerður og viðkvæmur
til þess að glíma við harðan raunveruleikann.47 Sebastian er miðjan í fyrri
hluta Brideshead og fjarvera hans leitar á áhorfendur í seinni hluta sögunn-
ar. Margir sem horfa á seinni helming þáttaraðarinnar fyllast af þessum
sökum þrá til fyrri hlutans og endurspegla þannig söknuð Charles. En for-
tíðarþráin, sem er svo sterk í verkinu, er ekki aðeins bundin æskunni held-
ur þjónar sveitasetrið því hlutverki að minna á stórveldistímann þegar
menning háaðalsins skilgreindi Breta út á við.
John. J. Su segir í grein sinni „Refiguring National Character: The
Remains of the British Estate Novel“ að niðurníðsla breskra sveitasetra,
líkt og sjá megi í Brideshead Revisited, veki upp sterka tilfinningu fyrir glat-
aðri þjóðlegri dýrð. Í skáldsögum Jane Austen, Henry James og E. M.
Forster er hugað að sveitasetrinu og þýðingu þess fyrir enskan persónu-
leika. Sveitasetrið stendur fyrir fortíðarþrá, að einhverju leyti vegna þess
að það stendur fyrir áframhald, hefð og ensk einkenni. Sveitasetrin verða
að myndhverfingu fyrir gott samfélag.48 Á eftirstríðsárunum verða þau að
miðlægum táknmyndum breskrar arfleifðar vegna þess að nærvera þeirra
er í ósamræmi við þá samfélagslegu ólgu sem tengja má auknum straumi
46 „,I have been here before‘, I said; I had been there before; first with Sebastian
more than twenty years ago on a cloudless day in June, when the ditches were
creamy with meadowsweet and air heavy with all the scent of summer; it was a day
of peculiar splendour, and though I had been there so often, in so many moods, it
was to that first visit that my heart returned on this, my latest.“ (bls. 23)
47 Sarah Cardwell, Adaptation Revisited, bls. 126.
48 John. J. Su, „Refiguring National Character: The Remains of the British Estate
Novel“, MFS Modern Fiction Studies 48, hefti 3, haust 2002, Baltimore: Project
Muse, bls. 554.
TIL PEMBERLEY VAR FöRINNI HEITIð