Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 10
PENINGAMÁL 2004/1 9
Starfsgreinasambandið (SGS) og Flóabandalagið
(aðildarfélög SGS við Faxaflóa) undirrituðu nýja
kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins (SA)
7. mars sl. Samningarnir eru að megininntaki sam-
hljóða. Þeir ná til allt að fjórðungs hins almenna vinnu-
markaðar, í ársverkum talið, en líklegt má telja að
kostnaðaráhrif þeirra muni í meginatriðum gilda fyrir
vinnumarkaðinn í heild.
Heildarkostnaður launagreiðenda á samningstím-
anum er metinn á 15,1% eða 3,6% að meðaltali á ári en
áhrifin fara minnkandi eftir því sem líður á samnings-
tímann eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Til
samanburðar má nefna að í kjarasamningum sömu
aðila árið 2000 var samið um tæplega 19% hækkun
launakostnaðar eða 4,4% hækkun að meðaltali á ári.
Meginatriði samninganna eru þrjú, þ.e. almennar
launahækkanir, ný launatafla og aukið framlag launa-
greiðenda í sameignarlífeyrissjóð. Almennar launa-
hækkanir verða samtals 11,5% á samningstímanum.
Laun hækka um 3,25% við gildistöku, 3% í upphafi árs
2005, 2,5% 2006 og 2,25% 2007. Lágmarkstekjur
hækka úr 93 þúsund krónum í 108 þúsund krónur á
samningstímanum eða um 4,2% umfram almenn laun.
Mikilvægur þáttur samninganna er gildistaka nýr-
rar launatöflu og tilfærslur ýmis konar bónus- og
álagsgreiðslna í taxtakaup í tveimur áföngum, við und-
irskrift og í janúar 2006. Kostnaðarauki af þessum
breytingum er metinn 1% í hvort skipti. Í tengslum við
breytingar á launatöflu var vaktavinnu- og vinnutíma-
ákvæðum sem snerta einstakar starfsgreinar eða vinnu-
staði breytt. Þær breytingar munu hafa í för með sér
aukinn sveigjanleika varðandi vinnutíma og vakta-
skipulag og gefa þannig kost á hagræðingu og stuðla
þar með að aukinni framleiðni.
Ennfremur er með þessum samningum stigið skref
í átt að samræmingu lífeyrisréttinda á vinnumarkaði
með því að framlag launagreiðenda í sameignarsjóð
hækkar á samningstímanum úr 6% í 8%. Frá 1. janúar
2005 fellur niður skylda launagreiðanda til að greiða
1% í séreignarsjóð án eigin framlags en í staðinn mun
launagreiðandi greiða 1% í sameignarsjóð. 1. janúar
2007 bætist síðan við önnur prósenta í sameignarsjóð.
Launamaður á þó áfram rétt á allt að 2% framlagi
launagreiðanda í séreignarsjóð á móti sama framlagi
launamanns. Kostnaður launagreiðanda er minni en
sem nemur viðbót í sameignarsjóð eða 1,1%. Stafar
það af því að tilfærsla úr séreignarsjóði í sameignar-
sjóð hefur eingöngu í för með sér 0,6% kostnaðarauka,
því að ekki taka allir launamenn þátt í séreignar-
sparnaði og lækkun tryggingagjalds um 0,45% mun
vega á móti auknum kostnaði að hluta árið 2007.
Meginstyrkur samninganna er langur samnings-
tími, en þeir renna út 31. desember 2007 og eru því til
tæplega fjögurra ára. Í þeim eru þó uppsagnarákvæði
svipuð og voru í kjarasamningum árið 2000 sem hægt
er að grípa til standist forsendur samninganna ekki en
þær eru svipaðar og þá voru. Annars vegar er miðað
við frávik frá ákveðinni verðlagsþróun og er nú miðað
við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Hins veg-
ar er forsenda um að kostnaðarhækkanir þessara kjara-
samninga verði almennt stefnumarkandi fyrir aðra
samninga á vinnumarkaði. Tvisvar á samningstíman-
um, í nóvember 2005 og 2006, mun nefnd skipuð af
ASÍ og SA meta hvort forsendur hafi staðist. Komist
nefndin að þeirri niðurstöðu að forsendur samningsins
séu brostnar verður annað hvort samið um launaliðinn
á ný eða samningi sagt upp og verður hann þá laus frá
næstu áramótum þar á eftir. Mikilvægt er þó að hafa í
huga að meira er í húfi nú en á síðasta samningstíma-
bili verði samningi sagt upp. Þá hefðu eingöngu al-
mennar launahækkanir fallið niður en nú myndu einnig
falla niður seinni breyting launatöflu og seinna
viðbótarframlag launagreiðanda í lífeyrissjóð.
Í tengslum við undirskrift samninganna lofaði
ríkisstjórnin að beita sér fyrir lækkun tryggingagjalds á
Rammagrein 1 Kjarasamningar
Aukning launakostnaðar vegna
kjarasamninga SGS, Flóabandalags og SA
% 2004 2005 2006 2007 Samtals
Almenn
launahækkun.......... 3,25 3,0 2,5 2,25 11,5
Launatafla.............. 1,0 . 1,0 . 2,0
Lífeyrissjóður ........ . 0,6 . 0,5 1,1
Starfsmenntamál.... . . 0,05 0,1 0,2
Samtals .................. 4,3 3,6 3,6 2,9 15,1