Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 68
ríkja sem eru talin líkleg til að taka upp verðbólgu-
markmið á næstu árum eru t.d. Indónesía og Rúss-
land (sjá t.d. Truman, 2003).
Verðbólgumarkmiðsstefna hefur einnig verið til
umfjöllunar í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan.17
Eins og kemur fram t.d. í Bernanke o.fl. (1999) og
Truman (2003) hefur peningastefna þessara ríkja
meira eða minna öll megineinkenni peningastefnu
með verðbólgumarkmiði og telja margir að í raun sé
fylgt verðbólgumarkmiði og hvetja ríkin til að taka
lokaskrefið til að gera peningastefnuna fyllilega
gagnsæja og auka þannig trúverðugleika hennar og
skilvirkni enn frekar. Oft er reyndar talað um að
bandaríski seðlabankinn og sá evrópski séu í raun
PENINGAMÁL 2004/1 67
Tafla 3 Möguleg framtíðarverðbólgumarkmiðsríki
Ríki Verðbólga (%) Markmið peningastefnunnar
Albanía 5,5 2-4% verðbólgumarkmið; stefnt að formlegri upptöku í framtíðinni
Alsír 1,4 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; markmið talið vera 3%
Argentína 25,9 Ná niður verðbólgu; stefnt að formlegu verðbólgumarkmiði í framtíð
Armenía 1,1 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefnir að 3% verðbólgu
Bandaríkin 1,5 Verðstöðugleiki er eitt meginmarkmiða; markmið talið vera um 2%
Dóminíska lýðveldið 8,9 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Evrusvæðið 2,3 Verðstöðugleiki er eina markmiðið; skilgreindur sem verðbólga nálægt 2%
Georgía 4,7 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefnir að verðbólgu undir 5%
Gvatemala 8,1 Meginmarkmiðið er að halda verðbólgu í 4-6%
Hondúras 7,7 Markmiðið er að ná verðbólgu niður í 6% á þessu ári
Indónesía 11,9 Meginmarkmiðið er að halda verðbólgu í 9-11%
Jamaíka 7,1 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefnir að 5-6% verðbólgu
Japan -1,0 Markmiðið er að ná verðbólgu (eða verðhjöðnun) upp í 0%
Kasakstan 3,4 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Kenía 1,9 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefnir að verðbólgu undir 5%
Kirgisía 2,1 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Króatía 5,0 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefndi að 6-8% verðbólgu 2002
Máritíus 5,4 Markmiðið er að halda verðbólgu í 4½-5%
Mongólía 8,0 Verðstöðugleiki meðal markmiða; stefnir að 5% verðbólgu
Rúmenía 22,5 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki; stefnir að 22% verðbólgu
Rússland 15,8 Meginmarkmiðið er að ná verðbólgu niður
Singapúr -0,4 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Slóvakía 3,3 Meginmarkmiðið er að ná verðbólgu niður
Slóvenía 7,5 Meginmarkmiðið er að ná verðbólgu niður
Sri Lanka 9,7 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Tansanía 4,6 Verðstöðugleiki meðal markmiða; stefnt að 0-5% verðbólgu
Tyrkland 45,0 20% verðbólgumarkmið fyrir 2003 og undir 10% á næstu árum;
stefnt að formlegri upptöku í framtíðinni
Úganda 3,7 Meginmarkmiðið er verðstöðugleiki
Venesúela 22,4 Meginmarkmiðið er að ná verðbólgu niður
Taflan sýnir meðalverðbólgu 2002 (eða 2001 þar sem gögn fyrir 2002 liggja ekki fyrir).
Heimildir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF/IFS), Sterne (2002), Carare og Stone (2003) og heimasíður viðkomandi seðlabanka.
17. Ítarlega umfjöllun um þessa umræðu, ásamt mati á kostum og göllum
þess að seðlabankar ríkjanna taki upp verðbólgumarkmið, er að finna í
Truman (2003).