Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 50
PENINGAMÁL 2004/1 49
einnig verulega öryggi í viðskiptum, auk þess sem
uppgjör urðu til muna öruggari. Kauphöll Íslands og
Verðbréfaskráning Íslands eru eign eins félags,
Eignarhaldsfélags Verðbréfaþings hf.
… en helstu veikleikar eru smæð markaðar, fæð
verðbréfaflokka og markaðsaðila
Smæð markaðarins, takmarkaður fjöldi virkra
verðbréfaflokka og fáir markaðsaðilar eru helstu
veikleikar Kauphallarinnar. Þótt velta hennar á
síðasta ári hafi verið um 1.578 ma.kr. er markaðurinn
þó agnarsmár á heimsvísu. Á árinu 2003 var hlutdeild
15 veltumestu hlutabréfa fyrirtækja með 83%
heildarveltunnar en hlutabréf 6 þessara fyrirtækja
hafa nú verið afskráð. Á árinu 2003 voru 12 flokkar
skuldabréfa með 87% af allri veltu. Í 57% tilfella
skráðra skuldabréfaflokka urðu engin viðskipti á
síðasta ári. Ljóst má vera að fáir virkir flokkar verð-
bréfa takmarka starfsemi verðbréfamarkaðarins og
litrófið er fremur fábreytt. Kauphallaraðilar á árinu
2003 voru 19 en hlutdeild þriggja stærstu aðilanna25
í hlutabréfaviðskiptum var 80% og hlutdeild í öðrum
viðskiptum var um 71-77%. Þegar aðilar að markaði
og virkir flokkar verðbréfa eru fáir er ávallt hætta á
að samkeppni verði áfátt og verðmyndun brotakennd.
Fleiri krónur að elta færri fjárfestingarkosti
Átján félög voru afskráð úr Kauphöllinni á árinu
2003. Ýmsar ástæður lágu að baki en aldrei hafa jafn
mörg félög verið afskráð á einu ári. Hinir nýju eig-
endur eru einatt fjárfestingarfélög sem sum eru skráð
á markaði. Engu að síður er afleiðingin sú að valkost-
um hefur fækkað til milliliðalausrar eignar almennra
hluthafa í skráðum atvinnufyrirtækjum. Þetta dregur
að einhverju leyti úr gegnsæi íslensks hlutabréfa-
markaðar. Eftir því sem skráðum félögum fækkar
beinist einnig fjárfesting lífeyrissjóða og verðbréfa-
sjóða að færri félögum vegna þeirra reglna sem um
sjóðina gilda og fjárfestingarstefnu þeirra. Sam-
kvæmt fjárfestingarstefnu er blönduðum verðbréfa-
sjóðum gert að hafa hluta eigna sinna í skráðum inn-
lendum hlutabréfum og sumir þeirra eiga að fylgja
samsetningu úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands. Þegar
skráðum félögum fækkar færist eftirspurn yfir á þau
félög sem eftir eru. Athyglisvert er að lífeyrissjóðirnir
seldu innlend hlutabréf á síðasta ári umfram kaup.
Alls var hrein sala rúmir 7 ma.kr. en endurmat vegna
hækkandi hlutabréfaverðs um 27 ma.kr.
Seðlabankinn starfrækir þrjá millibankamarkaði, …
Þrír millibankamarkaðir eru starfræktir af Seðla-
banka Íslands. Reglur eru í gildi en smæð og fæð
markaðsaðila eru helstu veikleikar. Reglur um milli-
bankamarkaði eru settar af bankanum og eiga sér stoð
í lögum um bankann. Mótun reglna hefur verið á
herðum Seðlabankans og í nánu samráði við aðila að
þeim. Viðskipti fara fram um síma eða viðskiptakerfi
Reuters. Upplýsingamiðlun fer fram í upplýsinga-
kerfi Reuters. Rekstraröryggi er þokkalegt og batnaði
mikið þegar sæsímastrengjum til landsins fjölgaði.
Símabilanir hafa stöku sinnum hamlað virkni milli-
bankamarkaðanna.
… með gjaldeyri, …
Aðilar að gjaldeyrismarkaði eru þrír og er markaður-
inn því brothættur og erfitt getur verið að bregðast
við bilunum hjá einstökum aðilum. Velta gjaldeyris-
markaðar á síðasta ári var rúmlega 1.185 ma.kr. Þótt
þetta sé tiltölulega há fjárhæð er talsverður hluti
hennar tilkominn vegna hringrásar sama fjármagns.
Erfitt er að áætla umfang raunverulegra viðskipta en
geta má þess að Seðlabanki Íslands keypti á síðasta
ári rúmlega 43 ma.kr. á þessum markaði og jafnaði sú
fjárhæð út 2/3 þess sem stærsti aðilinn seldi nettó inn
á markaðinn. Nokkur reynsla er fyrir því á gjaldeyris-
markaði að hann er mjög næmur fyrir breytingum.
Seðlabankinn hefur komið að þessum markaði og um
nokkurt skeið hefur hann verið tilbúinn til að grípa
Mynd 16
J F M A M J J Á S O N D J F
50
100
150
200
250
300
350
30. des. 2002=100
Úrvalsvísitala Sjávarútvegur
Fjármál og tryggingar Olíudreifing
Byggingar- og verktakastarfsemi Lyfjagrein
Nokkrar atvinnugreinavísitölur
Kauphallar Íslands 2003-2004
Heimild: Kauphöll Íslands.
Daglegar tölur 3. janúar 2003 - 27. febrúar 2004
2003 2004
25. Kaupþing banki hf. og Búnaðarbanki Íslands hf. taldir saman allt árið.