Peningamál - 01.03.2004, Blaðsíða 14
PENINGAMÁL 2004/1 13
áls. Eins og endranær byggist spáin á óbreyttum
stýrivöxtum og óbreyttu gengi krónunnar, sem er
nokkru hærra en í síðustu spá. Heldur meiri hagvexti
er spáð en í nóvember. Einnig verður vöxtur inn-
lendrar eftirspurnar og viðskiptahalli heldur meiri.
Slakinn á vinnumarkaði er hins vegar talinn heldur
meiri um þessar mundir en reiknað var með í nóvem-
ber, en hann mun smám saman hverfa þegar líður á
spátímabilið, eins og í nóvemberspánni. Þá er fram-
leiðnivöxtur talinn hafa verið töluvert meiri á síðasta
ári en reiknað var með í nóvember.
Sterkara gengi krónunnar og hægari vöxtur launa-
kostnaðar á framleidda einingu sökum meiri fram-
leiðni dregur úr verðbólguþrýstingi á næstunni. Því er
spáð minni verðbólgu fram undir mitt næsta ár en í
nóvember. Sé litið tvö ár fram í tímann er gert ráð fyrir
nánast sömu verðbólgu og í síðustu spám bankans.
Horfur um eftirspurn og framleiðslu
Gert er ráð fyrir stækkun Norðuráls
Í nóvember var ákveðið að taka ekki tillit til fyrir-
hugaðrar stækkunar álvers Norðuráls, því ekki lágu
fyrir nægar upplýsingar um umfang og tímasetningu
hennar og sú meginbreyting hafði orðið á áformunum
að ekki var lengur gert ráð fyrir orkuöflun Lands-
virkjunar, en samningar stóðu yfir við Orkuveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Nú liggja þess-
ar áætlanir hins vegar fyrir og eru framkvæmdir við
virkjanir sem veita eiga orku til stækkaðrar álbræðslu
annaðhvort hafnar eða eru að hefjast. Áætlað er að
umfang þessara framkvæmda muni nema tæplega 17
ma.kr. Meginþungi framkvæmdanna verður á þessu
ári og því næsta og stefnt er að því að þeim ljúki árið
2006. Þá mun vinna við tengivirki vegna aukinnar
orkusölu til Norðuráls hefjast á þessu ári og ljúka árið
2006. Kostnaður við tengivirkin er áætlaður u.þ.b.
6½ ma.kr. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við sjálfa
stækkun álversins hefjist síðan á þessu ári en megin-
þunginn verði á því næsta. Heildarkostnaður er talinn
verða um 22 ma.kr. Samtals mun því kostnaður vegna
stækkunar álvers Norðuráls og orkuöflunar verða á
bilinu 45-46 ma.kr. Þá mun heildarvinnuaflsþörf á
framkvæmdatímanum öllum verða tæplega 1.400
mannár.
Hærra gengi krónunnar en í nóvember
Af öðrum forsendum sem breyst hafa er fyrst að
nefna að gengi krónunnar hefur hækkað nokkuð frá
því sem reiknað var með í síðustu spá bankans. Þá var
gert ráð fyrir að gengisvísitala erlendra gjaldmiðla
yrði 126 stig á spátímabilinu en nú er gert ráð fyrir að
vísitalan verði 120 stig á tímabilinu. Þetta samsvarar
u.þ.b. 2,8% hækkun gengis krónunnar milli árs-
meðaltala 2003 og 2004 í stað lækkunar í síðustu spá
og 5% gengishækkun á spátímabilinu öllu. Meðal
annarra breytinga á forsendum má nefna áætlun um
meiri vöxt útflutningsframleiðslu sjávarafurða en á
móti kemur meiri lækkun á verði sjávarafurða en
síðast var gert ráð fyrir. Forsendur um þróun ál- og
olíuverðs taka mið af breytingu framvirks verðs. Eins
og endranær gerir spáin ráð fyrir óbreyttum
stýrivöxtum Seðlabankans.
1. Vegna álvers og virkjana. Heimild: Seðlabanki Íslands.
2002 2003 2004 2005 2006
0
4
8
12
16
20
24
28
Ma.kr.
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
3,5
% af VLF
Heildarkostnaður
í ma.kr.
Heildarkostnaður
sem hlutfall af VLF
Mynd 11
Heildarkostnaður1 Vinnuaflsnotkun1
Heildarkostnaður og vinnuaflsnotkun við stækkun Norðuráls 2002-2006
2002 2003 2004 2005 2006
0
100
200
300
400
500
600
700
800
Mannár