Peningamál - 01.03.2004, Síða 107

Peningamál - 01.03.2004, Síða 107
sem starfa í aðildarlöndum Efnahags- og myntbanda- lags Evrópu. Nýju reglurnar tóku gildi 21. desember 2003. Hinn 2. desember voru fjáraukalög þess árs sam- þykkt. Tekjuáætlanir voru hækkaðar um 6,4 ma.kr., mest vegna tekjuskatts fyrirtækja, virðisaukaskatts og arðtekna. Útgjaldaheimildir voru hækkaðar um 12,6 ma.kr. Íslandsbanki hf. keypti allt hlutafé í Framtaki fjárfest- ingarbanka hf. (áður Eignarhaldsfélag Alþýðubank- ans hf. og Þróunarfélag Íslands hf.) af Fjárfestingar- félaginu Straumi hf. í byrjun desember. Framtak fjár- festingarbanki hf. verður sameinaður Íslandsbanka hf. og mun sameiningin miðast við 1. janúar 2004. Samhliða sölunni var gengið frá samkomulagi þar sem Fjárfestingarfélagið Straumur hf. kaupir þær eignir Framtaks fjárfestingarbanka hf. sem flokkast undir áhættufjárfestingu. Viðskiptaráðuneytið tilkynnti að kaupverð Lands- banka Íslands hf. skyldi lækka um 700 m.kr. Hinn 5. desember voru samþykkt lög þar sem felld er niður heimild launagreiðenda til að verja hluta af tryggingagjaldi til mótframlags vegna frjáls lífeyris- sparnaðar (10% mótframlag allt að 0,4% af stofni tryggingagjalds). Hinn 12. desember var samþykkt frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt. Ákvæði um hátekjuskatt hefðu að óbreyttu runnið út árið 2003, en voru framlengd um tvö ár með lækk- andi skatthlutfalli, 4% vegna tekna 2004 og 2% vegna tekna 2005. Hámarksvextir til vaxtabóta voru lækkaðir úr 7% í 5,5% af skuldum við útreikning bóta frá og með 2005, en vaxtabætur 2004 voru lækkaðar um 10% frá því sem ella hefði orðið. Loks voru helstu bóta- og viðmiðunarfjárhæðir laganna hækkaðar um 2,5% milli áranna 2003 og 2004. Hinn 12. desember voru lög um alþjóðaviðskipta- félög með sérstökum skattafríðindum felld úr gildi frá og með 1. janúar 2008 og tekið fyrir ný leyfi frá og með 1. mars 2004. Hinn 15. desember voru samþykkt lög um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstarétt- ardómara. Hinn 15. desember hækkaði Moody’s lánshæfismat Kaupþings Búnaðarbanka hf. Langtímaeinkunn bankans var hækkuð úr A3 í A2, einkunn vegna víkj- andi lána fór úr Baa1 í A3 og einkunn vegna fjárhags- legs styrks fór úr C í C+. Skammtímaeinkunnin P1 var staðfest. Horfur um mat bankans skv. Moody’s eru jákvæðar. Hækkun lánshæfismatsins grundvallast að sögn Moody’s á sterkum efnahag, traustri eigin- fjárstöðu, hagræðingu frá samruna bankanna tveggja í maí og góðum rekstrarárangri ársins. Hinn 16. desember tilkynnti alþjóðlega matsfyrir- tækið Standard & Poor´s að það hefði breytt horfum um lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í erlendum gjald- miðlum úr stöðugum í jákvæðar. Fyrirtækið staðfesti jafnframt lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs, þar með taldar einkunnirnar A+/A-1+ fyrir lán í erlendum gjaldmiðlum og AA+/A-1+ fyrir lán í íslenskum krónum. Hinn 18. desember voru undirritaðir samningar milli Norðuráls, Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um orkuöflun vegna fyrir- hugaðrar stækkunar álbræðslu Norðuráls. Hinn 19. desember tilkynnti fjármálaráðuneytið að tekjuskattshlutfall á árinu 2004 yrði 25,75%, sem er hið sama og 2003. Meðalútsvar á árinu 2004 sam- kvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,83%, samanborið við 12,80% árið 2003. Staðgreiðsluhlutfall á árinu 2004 verður því 38,58%. Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,03%. Af 104 sveitarfélögum ætla 67 að innheimta hámarksútsvar en 5 sveitarfélög verða með lágmarks- útsvar. Hinn 21. desember undirrituðu stjórnendur Kaup- þings Búnaðarbanka hf. og stjórn Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis (SPRON) yfirlýsingu þess efnis að unnið yrði að því að SPRON yrði sjálfstætt starf- andi dótturfélag Kaupþings Búnaðarbanka hf. Stefnt yrði að því að eigendur í væntanlegu hlutafélagi um SPRON skiptu á hlutum í sparisjóðnum og nýjum hlutum í Kaupþingi Búnaðarbanka hf. Til þess að slíkt gengi eftir þyrfti stjórn SPRON fyrst að fá samþykki stofnfjáreigenda fyrir því að breyta spari- sjóðnum í hlutafélag. Samkvæmt fréttatilkynningum ætlaði Kaupþing Búnaðarbanki hf. að reka SPRON áfram sem sjálfstæða einingu. 106 PENINGAMÁL 2004/1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.