Peningamál - 01.03.2006, Side 59
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
1
59
1. Þar sem líkanið er á ársgrunni þarf að meta það yfi r tímabil sem nær tiltölulega langt aftur í tímann. Jöfn-
ur nar eru því metnar yfi r tímabil þar sem vaxtaákvarðanir voru t.d. ekki frjálsar, fjármagnshreyfi ngar til og
frá landinu heftar og verðbólga mikil og sveifl ukennd.
Viðauki 1
Nýtt ársfjórðungslegt þjóðhagslíkan Seðlabankans
Þjóðhagsspáin sem birtist í þessu hefti Peningamála er unnin með nýju
þjóðhagslíkani sem þróað hefur verið af starfsmönnum hagfræðisviðs
Seðlabanka Íslands. Þetta líkan er töluvert frábrugðið því líkani sem
Seðlabankinn hefur notað við mat á efnahagshorfum frá árinu 2002,
en er að gerð líkt líkönum sem ýmsir aðrir seðlabankar hafa notað. Hér
eru eiginleikar nýja líkansins bornir saman við eiginleika eldra líkans.
Gamla árslíkanið hentaði Seðlabankanum að ýmsu leyti illa
Frá því að Seðlabankinn hóf að birta þjóðhagsspár árið 2002 hefur hann
stuðst við þjóðhagslíkan sem þróað var af starfsmönnum Þjóðhags-
stofnunar í samvinnu við Seðlabankann og fjármálaráðu neytið. Þótt
líkanið hafi þjónað tilgangi sínum eru á því ýmsir annmarkar. Það
hentar t.d. ekki sérlega vel fyrir greiningar- og spávinnu af því tagi sem
Seðlabankinn hefur mesta þörf fyrir. Líkanið var t.d. á ársgrunni og
nýttist því ekki nægilega vel við að greina skammtímaþróun efnahags-
lífsins. Það er galli fyrir seðlabanka sem þarf að nýta sem best nýlegar
upplýsingar við mat á efnahagshorfum, sem eru mikilvæg undirstaða
vaxtaákvarðana. Gerð líkansins er einnig sérsniðin að þörfum ríkisfjár-
mála, með ítarlega sundurliðun á mismunandi skattstofnum og áhrif-
um þeirra. Síður er hugað að hlutverki peningastefnunnar og helstu
miðlunarleiðum hennar um hagkerfi ð, sérstaklega við núverandi að-
stæður þar sem gengi krónunnar fl ýtur á markaði og Seðlabankinn
hefur verðbólgumarkmið. Í slíku umhverfi hafa væntingar almennings
og markaðsaðila veruleg áhrif á hagstærðir eins og verðbólgu, gengi
og eignaverð. Árslíkanið er mjög stórt og sundurliðað og inniheldur
yfi r þúsund hagstærðir. Það er því afar kostnaðarsamt að halda því
við og uppfæra undirliggjandi gagnagrunna. Hætt er við að yfi rsýn
yfi r gangverk svo viðamikils líkans glatist og að erfi tt verði að túlka
mismun andi niðurstöður þess. Túlkunin verður enn vandasamari fyrir
þær sakir að miklar breytingar hafa orðið á grunngerð hagkerfi sins frá
því að líkanið var upphafl ega metið.1 Nokkuð langt er síðan það hefur
verið endurskoðað í heild sinni og ítarleg greining á langtímaeiginleik-
um þess hefur aldrei verið gerð.
Nýtt ársfjórðungslíkan
Af framangreindum orsökum hóf Seðlabankinn undirbúning að gerð
ársfjórðungslegs þjóðhagslíkans snemma árs 2001, sem gengið hefur
undir skammstöfuninni QMM (Quarterly Macroeconomic Model).
Töluverður tími fór í að byggja upp nýjan gagnagrunn sem styður
líkanið, enda ársfjórðungslegir þjóðhagsreikningar ekki til fyrir Ísland
nema frá árinu 1997 og fjöldi mikilvægra hagstærða ekki til á árs-
fjórðungstíðni. Þróunarvinnu við líkanið er að ljúka og byggist spáin í