Peningamál - 01.03.2006, Page 67

Peningamál - 01.03.2006, Page 67
F JÁRMÁLAMARKAÐIR OG AÐGERÐIR SEÐLABANKANS P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 1 67 á gengi krónunnar í febrúar og framan af mars stóð gjaldeyrisforðinn í 79 ma.kr. um miðjan mars. Þar af átti ríkissjóður um 13 ma.kr. Í apríl nk. fellur erlent lán ríkissjóðs í gjalddaga að fjárhæð um 22 ma.kr. og mun hann þá nýta uppsafnaðar gjaldeyrisinnstæður ásamt skamm- tímalántöku til að greiða það upp. Skammtímalánin verða síðan greidd upp smátt og smátt út árið með þeim gjaldeyri sem Seðlabankinn kaupir reglulega á innlendum millibankamarkaði í samræmi við áform sem lýst var í Peningamálum 2005/4, þ.e. 5 m. Bandaríkjadala á viku. Ávöxtun íbúðabréfa á fl eygiferð Miklar sveifl ur hafa verið á ávöxtun íbúðabréfa frá miðjum september þegar hún var hvað lægst. Það vekur einnig athygli hversu ólík þróun hefur orðið á einstökum fl okkum. Þannig reis ávöxtun HFF 150914 í 4,78% 8. febrúar, talsvert hærra en hinir fl okkarnir, en lækkaði einn- ig meira en þeir og fór í 3,89% 13. mars. Ljóst er að vegna þess að þetta er styttri fl okkur en hinir er minni áhætta að eiga viðskipti með hann en mynstrið hefur þó ekki verið algilt eins og sjá má á mynd 6. Íbúðalánasjóður bauð út íbúðabréf í júlí en síðan kom hlé á útboðum til 22. nóvember. Þá hækkaði ávöxtun íbúðalána um 0,45 prósentur í 4,60% en sjóðurinn bauð þá einnig nýja tegund lána sem voru án uppgreiðsluheimildar. Þessi fl okkur bar 4,35% ávöxtun. Kjósi skuldari að greiða upp lán þarf hann að greiða mun á uppreiknuðu verði þess og markaðskjörum íbúðabréfa af sambærilegri lengd. Íbúðalánasjóður bauð út íbúðabréf hinn 22. desember og tók þá tilboðum að fjárhæð 3,1 ma.kr. í lengsta fl okki íbúðabréfa, HFF 150644, á ávöxtunarkröfu 4,11%. Þetta leiddi til 0,10% hækkunar vaxta í útlánum sjóðsins. Í útboðinu beitti sjóðurinn nýrri aðferð, þ.e. útboðið fór fram utan hefð- bundins viðskiptatíma og virtist sú aðferð reynast vel. Íbúðalánajóður bauð aftur út íbúðabréf 7. mars og tók tilboðum að fjárhæð 4,4 ma.kr. í bréf í skemmsta fl okknum, HFF 150914 á ávöxtunarkröfu 4,09%. Í kjölfarið lækkaði sjóðurinn vexti til lántaka um 0,05%. Hinn 7. febrúar voru birtar fréttir af lánshæfi smati fyrirhugaðrar útgáfu Kaupþings banka á fasteignatryggðum skulda bréfum og hafði það talsverð áhrif á ávöxtun íbúðabréfa. Hægt hefur á útlánum til fasteignakaupa og kann samdráttur í útgáfu að valda aukinni eftirspurn eftir þeim en einnig hefur yfi rlýs- ing frá lánshæfi smatsfyrirtækinu Moody’s, sem fyrr er greint frá, um mat á fyrirhugaðri útgáfu Kaupþings banka á veðskuldabréfum, sem byggjast á fasteignaveðbréfum, sennilega haft áhrif á væntingar mark- aðarins um framboð íbúðabréfa. Íbúðalánasjóður lánaði út 10,6 ma.kr. á tímabilinu frá desember 2005 til febrúarloka 2006, samanborið við 14,45 ma.kr. ári fyrr sem er um 26% samdráttur. Útlán banka til fast- eignakaupa hafa einnig dregist skarpt saman. Talsvert hefur hægt á uppgreiðslum eldri lána Íbúðalánasjóðs. Vanhöld í vaxtamyndun óverðtryggðra bréfa Í desember tilkynnti ríkissjóður að hann hygðist breyta fyrirkomulagi verðbréfaútgáfu sinnar. Breytingarnar miðuðu að því að styrkja þá tvo fl okka ríkisbréfa sem eru á gjalddaga 2010 og 2013 en einnig var til- kynnt um breytingu á útgáfu ríkisvíxla þar sem einungis verða gefnir út eins mánaðar víxlar í stað þriggja mánaða víxla áður. Þar að auki Mynd 7 Ávöxtun ríkisbréfa Daglegar tölur 16. nóvember 2005 - 17. mars 2006 % Heimild: Seðlabanki Íslands. 7,0 7,5 8,0 8,5 9,0 9,5 10,0 10,5 RIKB 13 0517 RIKB 10 0317 RIKB 07 0209 marsfeb.jan.des.nóv. 3,5 4,0 4,5 5,0 marsfeb.jan.des.nóv. HFF 15 0644 HFF 15 0634 HFF 15 0224 HFF 15 0914 Mynd 6 Raunávöxtun íbúðabréfa Daglegar tölur 16. nóvember 2005 - 17. mars 2006 % Heimild: Seðlabanki Íslands. PM061_MOA.indd 67 6.4.2006 09:27:06
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.