Peningamál - 01.03.2006, Blaðsíða 69
Starfsreglur um undirbúning, rökstuðning
og kynningu ákvarðana í peningamálum
Í lögum um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 segir að bankastjórn setji starfsreglur sem bankaráð staðfestir um
und ir búning, rökstuðning og kynningu ákvarðana sinna í peningamálum. Í samræmi við þetta ákvæði voru
starfs reglur staðfestar í janúar 2002.1 Þær hafa nú verið endurskoðaðar og voru þær staðfestar að nýju í febrúar
2006.
Í skýringum við greinina um starfsreglurnar sagði í greinargerð sem
fylgdi frumvarpi til laga um Seðlabanka Íslands 2001: „Ákvarðanir sem
teknar eru á fundum bankastjórnar skulu skráðar með viðeigandi hætti
og staðfestar með áritun bankastjórnar. Til þess að tryggja að ætíð séu
viðhöfð bestu faglegu vinnubrögð við mótun og framkvæmd pen inga-
stefnunnar, í ljósi ákvæðanna um meginmarkmið stefnunnar skv. 3.
gr., þykir rétt að festa í lög ákvæði um að sérstakar starfsreglur gildi
um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana bankastjórnar í
peningamálum. Hér er t.d. átt við verkferli sem gilda við undirbúning
ákvarðana, við hvaða upplýsingar skuli stuðst og eftir atvikum hvaða
embættismenn bankans aðrir en bankastjórar taki þátt í því ferli þótt
á endanum sé það bankastjórn sem formlega tekur ákvörðun. Mik-
ilvægt er einnig að gera skýra grein fyrir ákvörðunum bankastjórnar,
sérstaklega þeim sem varða beitingu stjórntækja bankans í peninga-
málum. Þær skal birta opinberlega þannig að skýrt sé á hvaða forsend-
um þær byggjast og hvað í þeim felst. Með ákvæðum þessarar greinar
er leit ast við að tryggja að ákvarðanir bankastjórnar séu ætíð reistar á
eins faglegum grunni og kostur er, að peningastefnan sé gagnsæ og að
bankastjórn standi reikningsskil gerða sinna gagnvart stjórnvöldum og
almenningi. Greinin felur ekki í sér kvöð um að bankastjórn skuli birta
frásagnir af umræðum á fundum þegar ákvarðanir í peningamálum
eru teknar eða afstöðu einstakra bankastjóra.”
Sem fyrr segir voru fyrstu reglur þessa efnis settar í janúar 2002.
Þær hafa nú verið endurskoðaðar í ljósi reynslu og með hliðsjón af
því að frá og með árinu 2006 tekur bankastjórn Seðlabanka Íslands
ákvarðanir um vexti á fyrirfram ákveðnum og tilkynntum dögum. Nýj-
ar reglur voru formlega staðfestar 24. febrúar 2006. Þær eru eftirfar-
andi:
Starfsreglur um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana
í peningamálum
Starfsreglur þessar eru settar með hliðsjón af ákvæðum 3. mgr. 24. gr.
laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands. Þær byggjast á eftirfarandi
meginsjónarmiðum:
• Að ákvarðanir í peningamálum séu í samræmi við markmið bank-
ans.
• Að bestu faglegu vinnubrögð séu viðhöfð við ákvarðanir í pen-
ingamálum og að þær séu vel grundaðar.
1. Birtar í Peningamálum 2002/1.
PM061_Starfsreglur.indd 69 30.3.2006 10:04:30