Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 13
GLOÐAFEYKIR
13
nam, t. d. kr. 2,13 hærra fvrir kjötkíló miðað við hækkaðan grund-
völl 1. marz, — mun hærra miðað við haustgrundvöll. Einnig var
greitt verulega umfram grundvallarverð fyrir gærur og ull. —
Ákveðið er að hefja sláturhúsbyggingu fyrir 3000 kinda dagslátrun
auk 40 nautgripa. Áætlað er, að húsið taki til starfa haustið 1973.
Ef ekki stendur á opinberum aðiljum með óafturkræft framlag, virð-
ist fjármagn tryggt. Þarf þessi bygging því ekki að standa í vegi fyrir
eðlilegri framþróun félagsins.
Ég hef reynt að segja hér helztu niðurstöður í efnahags- og rekstr-
arafkomu félagsins. Samkvæmt þeim er félagið sæmilega á vegi statt,
þótt alltaf megi gera betur og óþrjótandi verkefni bíði á næsta leiti.
Þau taka aldrei enda. Frjósamt starf og framþróun er lífið sjálft.
Engu skal um það spáð, hvað framtíðin ber í skauti sér, hvorki hjá
okkur, skagfirzkum samvinnumönnum, né þjóðinni í heild. En
óneitanlega horfir þunglega á ýmsum sviðum efnahagsmála. Við
virðumst ekki hafa kunnað fótum okkar forráð í velmegun síðustu
áratuga. Það var öðruvísi umhorfs á landi hér fyrir 90 árum, þegar
þingeyskir bændur bundust samtökum um stofnun elzta kanpfélags
landsins. Þá var ekki góðæri, þá var ekki velmegnn, þá voru ekki
allsnægtir á hvers manns borði. Nei, þá var ekkert af þessum lífs-
gæðum fyrir hendi. Það var hart í ári og þröngt í búi, og margur
dó af vannæringu og kröm. Það var barátta upp á líf og dauða —
barátta, sem yngri kynslóðir skilja vart í dag í beimi allsnægta og
velmegunar. Við minnumst þingeyskra forystumanna með þakklát-
um huga, þeirra, sem brutu af sér einokunarhlekkina, urðu þjóð-
inni allri til eftirbreytni og síðan leiðarstjarna við stofnun kaupfé-
laga um landið allt, til ómetanlegrar hamingju og farsældar fyrir
þjóðina.
En það er fleiri merkra áfanga að minnast á þessn ári. Samband
ísl. samvinnufélaga varð 70 ára 20. febrúar í vetur og minnist afmæl-
isins á aðalfundi nú í vor. Á s.l. ári urðu 25 ára dótturfélög Sam-
bandsins: Samvinnutryggingar, Olíufélagið og Skipadeildin, sem öll
eru traustir stofnar í samvinnustarfinu í dag.
Kaupfélag Skagfirðinga verður 85 ára eftir 2 ár og er með elztu
félögum landsins. Ég óska því allra heilla og farsældar í framtíð-
inni. Starfsmiinnum öllum, stjórn og félagsmönnum þakka ég af
heilum huga og óska þeim velfarnaðar í nútíð og framtíð.
Sv. Guðm.