Glóðafeykir - 01.11.1972, Síða 22
22
GLOÐAFEYKIR
og í vörugeymsluhúsin. Þar hefur vantað einhvern Pétur Thorsteins-
son.
— Hvert var fiskurinn aðallega seldur?
— Hann var einkum seldur til Snánar, Portúgal, Ítalíu og Þýzka-
lands. Hertha gamla, sem margir eldri menn muna sjálfsagt eftir,
var aðallega í þessum flutningum, en Pétur Thorsteinsson átti hlut
í henni. Til baka kom hún svo með ýmsar vörur, m. a. kol o. fk, til
Bíldudalsverzlunar og annarra.
— Þau Thorsteinssonshjón voru barnmörg, ef mig minnir rétt.
— Kynntistu krökkum þeirra eitthvað að ráði?
— Á ekki stærri stað en Bíldudal, þó að hann væri að vísu allstór,
miðað við fjölmenni íslenzkra sjóþorpa á þeim árum, þekktust
allir unglingar meira og minna. Já, ég kynntist krökkum þeirra
hjóna vel, einkum þó Mugg (Guðmundi), sem seinna varð frægur
dráttlistarmaður og málari. Yið Muggur vorum jafnaldrar og mjög
samrýmdir. Muggur var snemma hneigður til myndgerðar. Ás-
grímur Jónsson, rnálari, var a .m. k. tvö sumur á Bíldudal. Vann
hjá Pétri en sinnti málaralistinni þess á milli. Þegar Ásgrímur var
að mála fylgdum við Muggur honum oftast eftir. Þá var Muggur
einnig alltaf að rissa eitthvað upp sjálfur og er ég á því, að Ásgrímur
hafi haft mikil og örvandi áhrif á myndlistarhneigð hans. Muggur
var ákaflega listfengur og saumaði m. a. mjög vel út, og mér kenndi
hann útsaum.
Nú, svo að við víkjum aftur að atvinnumálefnum, þá var vetrar-
vinnan aðallega í sambandi við ýmiss konar smíðar, viðgerðir og
endurbætur. Pétur hafði allajafna smiði á sínum vegum. Sumir
voru í fastri vinnu hjá honum árið um kring, aðrir öðru hvoru.
Smiðirnir unnu einkum við skipin, að seglasaumi, málningu, við-
gerðum á reiða og öðrum útbúnaði og svo í járnsmiðjunni.
Nokkuð var um róðra á opnum bátum, einkum á þeini tíma, er
þilskipin lágu inni. Ofurlítið höfðu svo ýmsir af skepnum.
— Var ekki almenn velmegun á Bíldudal á þessum árum?
— Jú, ég hygg, að fólk hér á landi yfirleitt hafi ekki almennt átt
við betri afkornu að búa en Bílddælir á þesstnn tímum. Pétur Thor-
steinsson var um margt nokkuð óvenjulegur maður. Sá hagnaður,
sem varð á útgerðinni og verzhminni, og oft mun hafa verið all-
mikill, gekk allur til framkvæmda í þorpinu. Að því bjó það um
langan aldur.
— Það hafa þá ekki verið fjárhagserfiðleikar, sem ollu því, að
Pétur hvarf frá Bíldudal?