Glóðafeykir - 01.11.1972, Page 29
GLOÐAFEYKIR
29
Freyjur og fylgisveinn
Húsfreyjur í Blönduhlíð fóru skemmtiför fram á Hveravöllu og
voru þar viðstaddar, er varðinn um þá Reynistaðabræður var af-
hjúpaður. I upphafi farar rákust þær á Bjöm á Sveinsstöðum, þar
sem hann stóð í varpanum í Varmahlíð, vegalaus og súr á svip. Buðu
þær Bimi þegar að fljóta með og hugðu gott til að hafa að fylginaut
svo fróðan mann, skemmtilegan og kvenlipran. Hækkaði þá heldur
en ekki brúnin á Bimi — og þótti engum mikið. Skömmu síðar
sendi hann Glóðafeyki fáeinar línur og lítið ljóð. Hér kemur hvort
tveggja:
Baldur Pálmason var staddur á Beinahól í Kjalhrauni, þegar
minnisvarðinn var afhjúpaður. Hin blíðu bros Akrahreppskvenna
munu hafa snert hann og sendi hann mér þetta ljóð litlu síðar.
Mér finnst rétt að láta það fara í „pressuna“.
Bjöm Egilsson.
Beinahóll: Minning — stríð og blið.
Oku burt úr Akrahreppi fljóðin frið,
skildu eftir skeggjúða í sláttutíð.
Ungar eru búkonur í Blönduhlíð.
Tóku með sér farandkarl með viðhorf víð,
beindu að honum kjassmælum og kossahríð.
Glaðar eru búkonur í Blönduhlíð.
Komu þær á hól með örlög ægistríð,
heilluðu þar mannsöfnuðinn brosin blíð.
Fagrar eru búkonur í Blönduhlíð.