Glóðafeykir - 01.11.1972, Síða 33
GLÓÐAFEYKIR
33
Hann vill sína liðsemd ljá
os; lami kostaríka,
sængurkonum að sitja hjá.
Sanngjam taxti verður þá.
En — hann vill reyndar búa til bömin líka.
Ritari hafði gaman af að egna fyrir Jón vin sinn með erfiðum
bragarháttum, en kom þar ekki að tómum kofum. Hafði Jón undið
sig úr þeim vanda sem ein kyrkislanga. f.n nú vildi ritari reyna vin
sinn til hlítar og sendi honum ljóðastef þetta með þeim ummælum,
að svarað skyldi í sama hætti, hvað Jón taldi lítils um vert:
Lengi knúði Ijóðastreng
ljónefldur Bakka-Jón.
Heyra má þar hann fer
hljómsnjallan kvæða-óm.
Nærkonum nýt svör
náði veita — og sá ráð.
Vatt sér undan vegskatti.
\rann þó ekki Hermann.
Nú svarar Jón í sama hætti (?):
Stefán hörpu hendir,
hátt syngur þá í streng.
Hljóma hvellir tónar,
svo hver maður fer í keng.
Nærkonur brjóst berja,
blika í augum tár.
— Hermann þá féll flatur,
fékk greiðan vegarskatt.
Þessa stöku sendi Jón eitt sinn sekreteranum vini sínum:
Hér var fleira fyrirtekið,
fullvel það í minnum er.
í ljóðastrokknum laglega skekið —
og lagið kom frá sjálfum þér.
Tvo undanfama vetur hafði Jón verið til hiisa hjá Steingrími
Arasyni fangaverði um sýslufundinn, og var ekki triitt um, að sekre-