Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 37

Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 37
GLOÐAFEYKIR 37 Að Flugumvri Veturinn 1919 til 1920 var ég í Litladalskoti í Dalsplássi, sem nú heitir Laugardalur. Veturinn 1920 var einn hinn harðasti, sem komið hefur á þessari öld. Fannfergi og ísalög voru með fádæmum. Þá voru Héraðsvötn allögð, svo hvergi sá vök fram að Herpis- tanga fyrir sunnan Norðurá eða lengra. Það var á útmánuðum þennan vetur, að ég fór í fyrsta sinn austur yfir Héraðsvötn og hefur líklega verið seint í marz eða snemma í apríl. Ég var sendur yfir að Uppsölum einhverra er- inda, sem ég man ekki, og ekki man ég heldur hvort ég var með staf, dreg það í efa. Ég kom að Uppsölum síðdegis og var þá glaða sólskin og hlýtt, meðan sólin var á lofti. Þá bjó á Upp- sölum Jóhannes Þorsteinsson með konu sinni, Ingibjörgu Jóhannsdóttur, og voru þau upprunnin úr Lýtingsstaðahreppi. — Mér er það minnisstætt, að þegar ég kom í hlaðið á Uppsölum, hlupu þar um stéttar tveir drengir fáklæddir mjög, annar fjögurra ára og hinn sex, synir þeirra hjóna. Þessir drengir urðu síðar nafn- kenndir menn, Jóhann hreppstjóri og oddviti á Silfrastöðum og dr. Broddi, skólastjóri Ktnnaraskólans. Ekki segir af ferð minni annað en það, að þegar ég fór vestur yfir \rötnin, var farið að skyggja og ég var hálf hræddur, þegar ég sá glæra bletti í ísinn hér og þar, hélt að það gætu verið vakir, en það var víst fjarri því. Síðan þetta gerðist eru nú liðin 50 ár og einu betur. Þó að þessi fyrsta ferð mín yfir Héraðsvötn sé mér minnisstæð, er sú næsta miklu Björn Egilsson

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.