Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 39

Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 39
GLOÐAFEYKIR 39 utan Merkigarð. Síðan lá leiðin norðaustur yfir Steinsstaðamela og ofan í Hólminn f)TÍr vestan Stokkhólma. Af Steinsstaðamelum er hin fegursta útsýn yfir Héraðsvötn og Blönduhlíð. Ég horfði hugfanginn yfir Vötnin, þar sem þau kvísl- ast um eyrar og grashólma og hlíðina handan þeirra. Ég hafði lesið eitthvað í Sturlungu og varð hugsað til þess þegar Gissur Þorvaldsson og Kolbeinn ungi fóru með 1400 manna lið frá Reykjalaug til Örlygsstaða árið 1238. Kolbeinn ungi skriftaði fyrir Þórði Reykjapresti um morguninn, en hvort hann hefur talið fram allar sínar syndir veit enginn. Um nóttina hafði Gissur dreymt Magnús biskup, föðurbróður sinn, er kom til hans og sagði: „Standið þér upp, fraendi, ég skal fara með yður“, og þótti Gissuri betur dreymt en ódreymt. Gissur spratt upp eftir drauminn, talaði fyrir liðinu og eggjaði menn sína til framgöngu með ræðu, sem prentuð er í Sturlungu. Niðurlagsorð ræðunnar eru þessi: „Gæti vor allra guð‘k. Ekki mun guð hafa gætt þeirra allra fyxir líftjóni, en hlið- hollur nokkuð var hann Gissuri, því síðar varð hann íslandsjarl, sá eini, er sagan greinir. Hugleiðingar mínar um Sturlungasögu urðu brátt að víkja fyrir því, sem auganu mætti á líðandi stund, en þetta var sannkölluð landkönnunarferð. Við ríðum tit hjá Mikley og fórum þar yfir Vötnin á svifferjunni á Akrahyl. Dálítil kvísl var spölkom vestan við ferjuna, og var hún í kvið eða vel það. Ferjan var við austurbakk- ann, enda ferjumaður búsettur þeim megin. F.kki man ég eftir neinni teljandi bið. Ferjumaður hefur sjálfsagt séð til okkar og brugðið við skjótt. Svo kom hann, stóð í stafni ferjunnar og snéri þar sveif með svo mikliun krafti, að ég undraðist stórum. Það var því líkast, að hann ætti lífið að leysa og hinn slyngi sláttumaður væri alveg að koma ef á væri slakað. Ég hafði aldrei séð þennan mann áður, en brátt fékk ég að vita, að það var Stefán Jónsson á Höskuldsstöðum. Síðan þetta var, hef ég oft séð Stefán og jafnvel talað við hann. Hann er nii kominn all mjög til aldurs, en stendur beinn ennþá og veitir F.lli kerlingu viðnám. Frá ferjunni fórum við sem leið lá út hjá Syðstugrund og síðan nokkuð beina leið heim að Flugumýri. \regurinn lá þá nokkru austar en nú. Búið var að slá og hirða dálítinn kraga í kringum bæ- inn og sætan ilm lagði úr hlöðu af yl í heyi. Fljótlega var gengið í kirkju og ég held, að messufólk hafi ekki verið ntjög margt. For- söngvari og organisti var Gísli Magnússon á Frostastöðum og ekki mun það hafa spillt messunni, að þeir þekktust vel, Gísli og séra

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.