Glóðafeykir - 01.11.1972, Side 48
48
GLOÐAFEYKIR
og vel að sér ger á allan hátt. Hún var hóglát kona, stillt og dagfars-
prúð, greind vel og mjög bókhneigð; er svo frá sagt, að bónda henn-
ar, sem var ákafamaðnr, hamhleypa og höfuðkempa, hafi á stundum
þótt sem helzti mikill tími færi í bóklestur — og var þó sjálfur engan
veginn fráhverfur bókum. En hann mat konu sína sem nrátti, enda
var hjónaband þeirra farsælt og gott.
Sigurður Einarsson, bóndi á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, lézt 16.
apríl 1963. Fæddur var hann að Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit 4.
sept. 1890. Var faðir hans Einar Guðmundsson, vinnumaður í Hof-
staðaseli, en móðir Oddnv Sigurðardóttir
bónda í Gilhagaseli (sjá þátt um Stefán á
Hofstöðum í 12. h. Glóðaf., bls. 46).
Sigurður var á hrakhólum með rnóður
sinni fyrstu ár ævinnar, en fluttist ungur
með henni að Stokkhólma í Akrahreppi til
Péturs Andréssonar, er þar bjó með aldr-
aðri móður sinni, Herdísi Pálmadóttur frá
Syðra-\7all(iol ti, systur Péturs í Valadal
(\'aladalsætt). Tók Herdís Sigurð í fóstur,
er móðir hans lézt, en þá var hann 10 ára.
Pétur í Stokkhólnra var sérstæður maður
um margt, sjálfgervingur og einrænn nokk-
uð, fór eftir eigin brautum en aldrei annarra götur, sjálfstæður um
alla hluti, greindur vel og tryggðatröll. Hann átti stóðhross mörg
og reiðhestakyn gott, enda frábær hestamaður, sem þeir frændur
fleiri frá \;aladal. Getur og naumast hestfæri betra en á víðum
völlum allt í kringum Stokkhólma, hvort heldur er á sumri eða
vetri. Þar átti Sigurður eftir að spretta úr spori seinna meir, er
hann sjálfur eignaðist margt hrossa.
Þar í Stokkhólma ólst Sigurður upp til 17 ára aldurs. Batt hann
tryggðir við þessa jörð og þau mæðgin, Herdísi og Pétur. Það voru
gagnkvæmar tryggðir. Næstu árin var hinn í vist á nágrannabæjum
í Blönduhlíð, austan Héraðsvatna, lengstum á Miklabæ og Hrólfs-
stöðum. \rarð af ævilöng vinátta með honum og þeim Miklabæjar-
systkinum, börnum síra Björns og frú Guðfinnu. Á þeim árum var
hann tvo vetur við nám í Hvítárbakkaskóla og bjó að því námi bæði
vel os: lensfi.
Árið 1917 kvæntist Sigurður Margréti Þorsteinsdóttur bónda og
smiðs á Hjaltastöðum, Hannessonar bónda á Bjarnastöðum í Kol-
Sigurður Einarsson