Glóðafeykir - 01.11.1972, Qupperneq 50
50
GLOÐAFEYKIR
Þórarinn Jónsson, bóndi á Fossi á Skaga, lézt af slysförum 14. júní
1963. Flann var Húnvetningur að ætt, fæddur að Brúarlandi í
Höfðakaupstað 9. janúar 1915, sonur Jóns Bjarnasonar sjómanns
þar og konu hans Ólínu Sigurðardóttur
ljósmóður.
Þórarinn ólst upp með foreldrum sínum.
en fór ungur að árum að vinna fyrir sér. Er
hann hafði aldur til og þroska, nam hairn
sjómannafræði og varð sér þannig úti um
skipstjórnarréttindi á smæni fiskiskipum;
fór um hríð með skip, sem gert var út frá
Skagaströnd. Vorið 1951 hvarf hann fiá sjó-
mennsku, keypti jörðina Foss, reisti bú og
bjó þar til lokadags. Eigi var Þórarinn mikl-
um efnum búinn, er hann gerðist bóndi á
Fossi. En hann reyndist búsýslumaður í
bezta lagi, kom sér upp gagnsömu fjárbúi á skömmum tíma; hann
var áhugasamur um kynbætur sauðfjár og mun hafa allvel áunnizt
í því efni. Hann var framfaramaður og framkvæmda, kostaði all-
miklu til um ræktun, raflýsti íbtiðar- og peningshús.
Árið 1939 kvæntist Þórarinn Klöru Berndsen af Skagaströnd.
Börn þeirra eru 4: Hlöðver, bóndi að Lágmúla á Skaga, Seltna,
húsfreyja á Skagaströnd, Jónbjörn og Regina, bæði á Sauðárkróki.
Þórarinn á Fossi var tæplega meðalmaður á vöxt, hvikur á fæti,
liðlegur og snar í hreyfingum. Hann var skarpleitur, hvasseygur,
svipmótið þvílíkt, að af því mátti ráða, að þar færi maður, sem eigi
ægði allt í augum. Hann var hörkuduglegur til allra verka, m. a.
rnjög eftirsóttur fláningsmaður í sláturhúsum. Ef skjótra handtaka
þótti við þurfa þar sem Þórarinn var nærstaddur, var viðbragðs-
flýtir hans svo mikill og öruggur, að til var jafnað. Mun að vísu
kjarkur og snarræði hafa verið honum í blóð borið, en vel má þó
ætla, að þessir eðliskostir hafi náð að þroskast til hlítar á skip-
stjórnarárum hans, þá er á honum hvíldi ábyrgð á skipi og áhöfn.
Þórarinn á Fossi var einarður maður og drengilegur og ágætur
félagi. (Heimildarm.: Guðm. Árnason).
Þórarinn Jónsson
Sigurður Sigurðsson, fv. sýslumaður og bæjarfógeti á Sauðárkróki,
lézt þ. 20. júní 1963.
Fæddur var hann í eynni Vigur 19. sept. 1887. Foreldrar: Sr.