Glóðafeykir - 01.11.1972, Síða 55

Glóðafeykir - 01.11.1972, Síða 55
GLOÐAFEYKIR lagi, fallega vaxinn, fimleikamaður ágætnr framan af árum, harð- fengur og knár í bezta lagi; vel farinn í andliti, hýr á svip og bros- mildur. Hann var prýðilega greindur og fjölgefinn, stilltur vel og skipti eigi skapi, prúður í háttum og hlýr í viðmóti, trygglund- aður, falslaus og einlægur. Glaður var hann að jafnaði og glettinn 1 máli, æringi í sinn hóp, hafði hljóð úr hvers manns barka og gat látið mann veltast um af hlátri. Árni Gíslason átti heilan heim af hugsjónum, félagslegum hug- sjónum og öðrum; samvinnumaður einlægur. En hann var hlédræg- ur, sjálfum sér til tjóns. Skortnr á sjálfstrausti var ef til vill mestur Ijóður á ráði hans. Hann var einn þeirra manna, sem vitandi vits gera ekki á annarra hluta. Hann var góðnr drengur og gott með honum að vera. Haraldur Sigurðsson, verzlunarmaður á Sauðárkróki, lézt 18. okt. 1963. Hann var fæddur í Viðvík 12. júlí 1882. Foreldrar: Sigurður, síðar bóndi á Bakka í Viðvíknrsveit, Halldórsson, bónda á Hrafns- stöðum í Svarfaðardal, Sigurðssonar, og kona hans María Aíagniisdóttir á Fagranesi í Öxnadal, Jónssonar, og konu hans Sigríðar Magnúsdóttur frá Búðamesi. „Arið 1888 fluttist Haraldur með foreldr- um sínum að Bakka, þá 6 ára gamall. Faðir hans drukknaði 1893. Gerðist þá María móðir lians ráðskona hjá Ásgrimi Gunn- laugssyni, ágætum manni, og bjuggu þau í Hvammi í Hjaltadal 1894—1903. Naut Har- aldur þar góðs uppeldis og hollra heimils- hátta“. (K.K.). Hann stundaði nám í Hóla- HaraldurSigurðsson skóla og lauk búfræðiprófi 1905. F.ftir það réðst hann til ýmissa starfa, hafði m. a. á hendi barnakennslu í Ós- landshlíð nokkra vetur. Hugur hans hneigðist mjög til búsýslu. Fn hvort tveggja var, að efni voru eigi mikil til að setja saman bú og eins hitt, að jarðnæði lá ekki á lausu á þeim árum. Réðst hann þá til verzlunarstarfa, er honum buðust á Sauðárkróki, og fórst ágæt- lega, enda prúðnr í fasi, aðlaðandi og viðmótshlýr, greiðvikinn og röskur við afgreiðslu, vandvirkur og skrifari ágætur. Jafnan var þó hugurinn bundinn búsýsln. Hafði hann og löngum nokkurt bú, stundum allstórt, þótt skilyrði til búrekstrar fyrir verzlunarmann á Sauðárkróki gætu engan veginn talizt hagstæð. Mun og meir hafa

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.